þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir fína yfirferð. Ég hjó eftir því að hann talaði um mikilvægi þess að við hér á Íslandi myndum vinna að okkar mikilvægustu málum, efnahagsmálum, skólamálum, samgöngum. Er hann ekki sammála mér í því að það sé líka mikilvægt, sérstaklega á þessum tíma, að ræða stöðu íslensks landbúnaðar, sér í lagi í ljósi þeirrar staðreyndar að yfir 40% bænda á Íslandi sjá ekki fyrir sér framtíðarrekstur á sínum býlum? Með öðrum orðum, það er enginn sem ætlar sér að taka við.