þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ágætisandsvar. Í ræðu minni ætlaði ég að fjalla um bæði sjávarútveg og landbúnað en ég þurfti að skauta yfir þá kafla þar sem ég hafði ekki tíma til að ræða það. Ég tel að við höfum séð það núna, í öllum þeim atburðum sem hafa dunið á heiminum síðustu áratugi, að fæðuöryggi er eitt af því sem við þurfum að hugsa virkilega mikið um. Við sáum það í fjármálahruninu að það er enginn annars bróðir í leik. Við vorum skilin eftir af öllum okkar vinaþjóðum og enginn var tilbúinn að rétta fram hjálparhönd nema, að mig minnir, Pólverjar og Færeyingar. Rússar voru eitthvað að daðra við það. Svo sáum við í Covid að hver þjóð á fætur annarri læsti sínu landi, óháð því hvort aðrir þyrftu hjálp eða ekki, og hver þjóð var því að hamstra bóluefni fyrir sig þannig að þriðji heimurinn varð af bóluefnum. Það er nú öll hin vestræna manngæska sem menn eru að stæra sig af almennt. Þannig að ég segi það að við þurfum að geta tryggt fæðuöryggi á Íslandi og til að geta tryggt fæðuöryggi þá erum við eiginlega með allar stoðir nema olíu. Þess vegna þurfum við að fara að bora á Drekasvæðinu til að vera nokkuð örugg um að við séum með orku, bæði rafmagn og við erum með jarðhitann. Við erum með fiskveiðarnar og til að skipin geti gengið og vélarnar geti gengið þá þurfum við olíu. Þegar þetta er komið og er komið í lag, þegar við fáum olíuna líka inn, þá getum við lifað án utanaðkomandi aðstoðar.
En mig langar að varpa því fram hér hvort hv. þingmaður muni segja já eða nei við aðild nú í haust.