þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Já, vissulega er hér um að ræða þjóðaröryggismál þjóðarinnar, fæðuöryggið. Mig langar í framhaldi af þessu að spyrja hv. þingmann: Hvert er hans mat á því að hæstv. atvinnuvegaráðherra er búin að framlengja búvörusamning um heilt ár eða til loka 2027? Hún ætlar sér að skoða samninginn vel frá öllum hliðum til þess að geta mætt þessu ákalli íslenskra bænda á sama tíma og það er verið að keyra ESB í gegnum þingið. Er möguleikinn sá að bændur muni ekki standa uppi með nýjan búvörusamning í lok árs 2027 heldur eingöngu drög að áætlun um aðgerðir ætlaðar til þess að koma íslenskum landbúnaði í ESB?
Svarið við spurningunni um atkvæðagreiðsluna er nei. Ég er kúabóndi og það væri dauðadómur fyrir mig.