þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir gott andsvar. Það sem er að ákveðnu leyti sérstakt við þá flokka sem þrá að komast í faðm ESB er að það er alveg ljóst að við munum verða nettó-plús þjóð sem þýðir að við þurfum að borga með okkur, milljarða á milljarða ofan, inn í sambandið. Þeim milljörðum væri t.d. betur varið í landbúnað þannig að við gætum reynt að tryggja fæðuöryggi þjóðarinnar. Það er ekkert langt síðan, það eru 20 til 25 ár síðan, að ég hló að þessu orði, fæðuöryggi. Það skipti engu máli. Ég var einhvern veginn grandalaus um það hvað heimurinn getur snúist hratt. En á síðustu árum hef ég tekið eftir því, svo að ég segi það bara aftur, og það sást í þessum áföllum í fjármálahruninu og Covid, að hver hugsar um sig. Við þurfum að hafa getu til þess að framleiða ofan í þjóðina, hvort sem það er kjöt eða mjólk eða fiskur eða einhvers konar kornrækt, við þurfum að geta það og til þess þurfa að vera bændur um land allt. Þetta er ekki einhver rómantík, þetta þarf að vera til staðar. Þess vegna er ég ánægður að heyra að hv. þingmaður ætlar að segja nei, ekki bara af því að hv. þingmaður er kúabóndi heldur vegna þess að það er svo miklu meira en það sem er undir fyrir þjóðina. Og við megum ekki gleyma því að ef við segjum já í lok ágúst þá er það ekki einhver pakki sem við erum að fara að kíkja í. Þá erum við að fara að hefja aðlögunarviðræður. Það stendur í þingsályktunartillögunni að við séum að fara að hefja aðlögunarviðræður. Þá setjum við landbúnaðinn og við setjum í rauninni bara allt atvinnulífið í uppnám og um það verða menn að hugsa þegar þeir kjósa 29. ágúst 2026.