157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

Störf þingsins.

[10:42]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf):

Frú forseti. Ég er á nákvæmlega sömu slóðum og hv. þm. Eydís Ásbjörnsdóttir, þ.e. þessu loðnuverði. Það er auðvitað óskiljanlegt nokkrum manni að það sé greiddur þriðjungurinn af því verði fyrir fiskinn sem er greitt í Færeyjum. Það sem mig langar að fjalla hér um eru viðbrögðin við málinu. Það heyrist ekki eitt einasta tíst í stjórnarandstöðunni. Hvers vegna er það? Stjórnarandstaðan hefur flutt hér innblásnar ræður um það að við megum ekki missa yfirráðin yfir fiskimiðunum en þegar kemur að þessum hagsmunum, sem eru augljósir hagsmunir þjóðarinnar, heyrist ekki eitt tíst í þingmönnum stjórnarandstöðunnar. Það hefur komið fram að hæstv. ríkisstjórn sé að fara yfir málið og það þarf að koma skýrt fram hér og nú hvernig sú skoðun fer fram. Fjárlaganefnd hefur leitað eftir svörum, m.a. frá Skattinum, um hvort málið sé til skoðunar og þar hafa svörin komið, fyrir viku síðan, um að engin skoðun sé í gangi. Sjálfur hef ég gert ítrekaðar tilraunir til að fá svör og leggja fram fyrirspurnir um afurðaverðið en einhverra hluta vegna hafa þær fyrirspurnir hingað til verið misskildar, mjög einfaldar og skýrar fyrirspurnir um það hver útflutningsverðmæti afurða á loðnu séu. Þessu þarf að svara og ég tel að ríkisstjórnin þurfi að láta hendur standa fram úr ermum í þessu máli því að hér er um gríðarlega hagsmuni að ræða, gott ef það eru ekki rúmir 20 milljarðar kr. Verðlagsstofa skiptaverðs hefur ekki enn aðgang að útflutningsverðmæti loðnuafurða þrátt fyrir, frú forseti, að skiptahlutur sjómanna ákvarðist af afurðaverði. Hér er ástand sem er ólíðandi. Ég segi að engin vestræn þjóð eigi að sætta sig við þvílíkt ógagnsæi hvað varðar helstu útflutningsafurð þjóðarinnar.