Störf þingsins.
Frú forseti. Þegar ég var á göngu hér að þinginu áðan þá heyrði ég að hv. þm. Þorgrímur Sigmundsson var að tala um sama málefni og ég ætlaði að taka hér upp í störfunum í dag sem er mál sem ég hef fylgst með á undanförnum árum, sérstakt mál sem snýr að peningaþvætti og bílasölum og bílaumboðum í landinu. Ég skal segja það hér að ég tengist eiganda bílaumboðs fjölskylduböndum en það er með ólíkindum hvernig þessum málum hefur verið háttað á Íslandi, hvers konar gullhúðun hefur verið stunduð hér á landi í þessum málaflokki. (Gripið fram í.) — Það hefur ekki farið vel undanfarið misseri, hæstv. ráðherra Logi Einarsson. En ég hvet alla þingmenn til að lesa þessa grein í Morgunblaðinu og ég hvet formann efnahags- og viðskiptanefndar, Örnu Láru Jónsdóttur, til að taka þetta mál upp á vettvangi þeirrar góðu hv. nefndar vegna þess að þetta er algjört lykilmál sem snýr að augljósri gullhúðun eins og hún verður verst. Bankarnir hafa ákveðið hlutverk. Skatturinn er með ákveðið hlutverk. En það er eins og það sé búið að finna upp á því — vegna eigin vangetu Skattsins er hann búinn að koma því sem snýr að þessu yfir á fyrirtækjareksturinn í landinu. Þetta er ótrúlegt mál. [Samtal í þingsal.] Það er lykilatriði að koma þessu á betri stað. Ég vil vitna í, með leyfi forseta, Benedikt S. Benediktsson framkvæmdastjóra Bílgreinasambandsins þar sem hann segir: (Forseti hringir.)
(Forseti (ÞSv): Gefa ræðumanni hljóð.)
„Við sjáum ekki betur en að þessi skylda hafi verið felld á bílasala og bifreiðaumboð vegna þess að Skatturinn bað um það, vegna þess að þeir töldu að þessir aðilar skildu ekki að á þeim hvíldi tilkynningarskylda þegar þeir tækju við reiðufé yfir tilteknum mörkum. Lausnin var sú að gera þá alltaf tilkynningarskylda.“
(Forseti hringir.) Ég hvet hv. efnahags- og viðskiptanefnd til að taka á þessu máli. Þetta er augljóst mál og það er dýrt fyrir íslenskt samfélag að vera með svona rugl í gangi sem varðar þennan þátt, bílasölur og bílaumboð í landinu.