opinberir háskólar.
Virðulegur forseti. Þetta er mál sem á margan hátt er jákvætt að því leytinu að margir horfa til þess að þarna séu ákveðin tækifæri til að tryggja í sessi starfsemi hjá litlum skóla til langrar framtíðar sem er að ströggla eins og hann er í dag. Málið hefði hins vegar þurft frekari undirbúning. Sagan hræðir okkur frá því þegar Háskóli Íslands tekur yfir litla skóla. Hann gerði það á Laugarvatni þegar Íþróttakennaraskólinn fór undir Kennaraháskólann og síðan Kennaraháskólinn undir Háskóla Íslands og það næsta sem gerðist var að Háskóli Íslands tók alla starfsemi frá Laugarvatni til Reykjavíkur þannig að sporin hræða. Það bætir síðan ekki úr skák að ríkisstjórnin, framkvæmdarvaldið, hefur ekki undirbúið nægjanlega það sem gerist síðan eftir, varðandi húsakost á þessum mikilvæga sögustað. Ég hefði kosið að þetta mál hefði fengið betri undirbúning áður en það kom hérna inn. (Forseti hringir.) En málið sjálft, þ.e. að efla háskólastarfsemi á Íslandi, er á margan hátt jákvætt, ákveðin tækifæri í því, en ég ítreka að sporin hræða.