opinber stuðningur við vísindi og nýsköpun.
Virðulegi forseti. Já, ég styð þessa grein eins og frumvarpið í heild sinni. Ég mismælti mig reyndar áðan, ég ætlaði auðvitað að biðja ríkisstjórnina um að vakna af svefninum, svo það sé skýrt. Það er ofboðslega gott að við mælumst vel með okkar nýsköpunarumhverfi. Þær mælingar eru reyndar frá fyrri árum. Ég er ansi hrædd um að svo verði ekki þegar þessu ári er lokið og þessum afgreiðslum núna. En það er gott að heyra það sem hæstv. ráðherra segir og ég vona að hæstv. fjármálaráðherra taki undir þetta og finni leiðir til þess að tryggja það að hér verði enn þá öflugar endurgreiðslur vegna rannsókna og þróunar svo og þessar bætur sem við samþykkjum hér varðandi stuðningsumhverfi nýsköpunar í heild sinni.