fullnusta refsinga.
Frú forseti. Ég tek undir með hv. þm. Sigríði Á. Andersen og tek undir þau sjónarmið sem þar komu fram. Í frumvarpinu er verið að lögfesta enn frekar þá reglu að útlendingar sem eiga yfir höfði sér brottvísun afpláni styttri fangelsisvist en Íslendingar. Þetta er ódýr leið til að bregðast við eða leysa mjög bráðan og alvarlegan vanda sem er í fangelsiskerfinu, sem eru þessir löngu boðunarlistar. Við höfum einmitt líka áhyggjur af því hvaða skilaboð við erum að senda út í samfélagið, sérstaklega á tímum sem þessum þar sem glæpastarfsemi fer hiklaust yfir landamæri. Því munum við sitja hjá við afgreiðslu þessa máls. En auðvitað hvetjum við hæstv. ráðherra og munum styðja hann í öllum sínum aðgerðum við að sjá til þess að erlendir glæpamenn afpláni bara sína fangelsisvist erlendis.