157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

fullnusta refsinga.

514. mál
[11:31]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Eins og fram hefur komið hér í útskýringum ólíkra þingmanna þá er málið einhvers konar tilraun til að hjálpa til við að taka á þeim vanda sem við glímum við í fangelsiskerfinu. Í dag er staðan sú að útlendingar sitja oft skemur í fangelsi en Íslendingar, þessir sem koma hingað inn og eru síðan í samfélaginu. Það jákvæða við þetta er að þeim skal þá vísað úr landi strax. Annað sem er jákvætt við þetta er að þetta er tímabundið og afturvirkt og á ekki þar af leiðandi að hafa áhrif á það að draga hingað glæpamenn í framtíðinni. En það fylgir því auðvitað að það þarf að fara í heildarendurskoðun á umhverfinu. Í heild sinni er málið kannski jákvætt skref þó að það sé á engan hátt fullkomið.