157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

fullnusta refsinga.

514. mál
[11:33]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Mig langar að taka undir orð stjórnarandstöðunnar í þessu máli. Hæstv. dómsmálaráðherra er vandi á höndum. Það eru yfirfull fangelsi. Það er óyndisúrræði að losa fangelsin við glæpamenn sem hafa lítil eða engin tengsl við landið og þeim hefur verið brottvísað með endurkomubanni. Þannig að fólk átti sig á því þá geta menn framið hér mjög alvarlega glæpi, hafa engin tengsl við landið, þeir afplána einn þriðja og fara til síns heimaríkis, er brottvísað þar sem ekkert annað tekur við heldur en bara daglegt líf. Það er ekki áframhaldandi fangelsisvist þar. Og ef menn eru innan Schengen-svæðisins þá geta menn að sjálfsögðu ferðast á milli landa þar óáreittir. Þannig að þetta er ákveðin svona, eins og menn segja á íslensku, skítaredding að losa sig við þennan hóp. En það er sérstakt að menn geti komið hingað til Íslands. Þetta gæti verið söluræða; þrátt fyrir að menn tali um að þetta sé tímabundið þá er mögulega hægt að selja mönnum það erlendis að hér þurfi menn bara að afplána einn þriðja af dómi og koma síðan heim í venjulegt líf innan Schengen, (Forseti hringir.) því að við vitum alveg hvernig endurkomubann hingað til Íslands innan Schengen virkar. Þannig að hæstv. dómsmálaráðherra er vandi á höndum. En við munum þó sitja hjá, (Forseti hringir.) eins og hefur komið fram í máli hv. þm. Sigurðar Arnar Hilmarssonar.