náttúruvernd, Vatnajökulsþjóðgarður og úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.
Virðulegi forseti. Ekki ætla ég að gera annað en að hrósa hæstv. ráðherra fyrir að fylgja eftir málum og endurflytja mál sem við unnum að. Það er skynsamlegt og fyrir það ber að þakka. Við munum styðja hæstv. ráðherra í því. En hér er hins vegar um breytingu að ræða sem er mjög alvarleg. Það hefur verið unnið að því í mörg ár og hér hafa verið hópar á Langanesi, í Dölum og á Vestfjörðum og fleiri stöðum sem samanstanda af heimamönnum sem hafa komið með tillögur um þjóðgarða á sínu svæði sem þeir þekkja best, að því gefnu að heimafólk, sem þekkir málin best, verði í meiri hluta í stjórn þeirra, vegna þess að sporin hræða þegar sérfræðingar að sunnan eru að segja fólki úti á landi hvernig hlutirnir eru. Við erum þess vegna hér með breytingartillögu, (Forseti hringir.) virðulegi forseti, um að fólkið sem þekkir svæðin best, sem eru sérfræðingar í málunum, verði eðlilega í meiri hluta í stjórnum þjóðgarða ef þeir verða stofnaðir. Það væri sorglegt, virðulegi forseti, (Forseti hringir.) ef við værum enn og aftur að stíga skref að láta sérfræðinga að sunnan (Forseti hringir.) hafa vit fyrir fólki sem þekkir málin miklu, miklu betur en þeir.
(Forseti (ÞSv): Forseti biður hv. þingmenn um að virða ræðutímann.)