157. löggjafarþing — 108. fundur, 21. maí 2026.
náttúruvernd, Vatnajökulsþjóðgarður og úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.
581. mál
Herra forseti. Ein af ástæðum þess að Vatnajökulsþjóðgarður er vel lukkaður er að módelið var að heimamenn hefðu þar meiri hluta. Ég hef alla tíð verið þeirrar skoðunar að það sé mikilvægasti þátturinn í uppbyggingu þjóðgarða hringinn í kringum landið að heimamenn hafi þar meiri hluta í stjórnum. Þess vegna finnst mér þessi tillaga hv. þm. Guðlaugs Þórs Þórðarsonar jákvæð og ég mun styðja hana.