157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[12:18]
Horfa

Grétar Mar Jónsson (Flf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég ætla að segja já 29. ágúst ef þessi tillaga verður samþykkt sem ég á frekar von á. Mín fyrsta spurning til Dags B. Eggertssonar eftir góða ræðu hér áðan er að ef jáið verður ofan á og ef það verður farið í samningaviðræður við Evrópusambandið er að mínu mati áríðandi að verðmyndun á sjávarfangi verði komið í eðlilegt horf áður en af þeim samningum verður. Þá er ég að spyrja hv. þm. að því hvort hann styðji það ekki að allur ferskur fiskur á Íslandsmiðum, ég er að tala fyrst og fremst um ísfisk og bolfisk, verði verðlagður með færeysku aðferðinni, 30% af aflanum inn á fiskmarkað sem myndar þá kílóverð á allar tegundir í farminum og við fáum rétt verð upp úr sjó sem mun skila sér í tekjum til sjómanna, útsvari til sveitarfélaga, meiri tekjum í hafnarsjóði og hærri veiðigjöldum.