157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[12:27]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Nú held ég að hv. þingmaður sé kominn í vandræði. Hann virðist alla vega ætla að hlaupa undan þessum orðum hæstv. forsætisráðherra. Þetta snýst ekki bara um það að hún skrifi undir einhvern samning. Hún skrifar undir samning sem hún er að segja að hún ætli að treysta þjóðinni, meiri hlutinn segist treysta þjóðinni, en ef hún treystir þjóðinni og þetta á að vera vilji þjóðarinnar hlýtur hún að skrifa undir samninginn hvað sem hennar persónulega mat er af því að það er búið að fara í gegnum þetta og þjóðin hafnar þessum ömurlega samningi, ekki vegna þess að þetta sé hennar persónulega mat. Hins vegar fagna ég því að það liggi fyrir að það sé í lagi að mati hv. þingmanns að forsætisráðherra ákveði að gera þetta ekki. Fyrir mér snýst þetta bara um hvort þjóðin á raunverulega lokaorðið eða ekki og augljóslega á hún það ekki. Samfylkingin virðist ætla að eiga það.

Í lokin langar mig að spyrja: Hefur hv. þingmaður ekki áhyggjur af því hvað Evrópusambandið er að dragast aftur úr Kína, Asíu allri, Bandaríkjunum, þegar hv. þingmanni er tíðrætt um að bæta samkeppnisstöðuna (Forseti hringir.) með því að fara inn í Evrópusambandið, samband sem stendur sig svo illa í samkeppni í heiminum?