þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég vil taka undir orð hv. þm. Ólafs Adolfssonar, þingflokksformanns Sjálfstæðisflokksins, um að það sé ágætt að allir hér í þingsalnum gæti hófs í orðavali og að umræðan sé efnisleg. Hér getur mönnum hlaupið kapp í kinn, það er þekkt, og þá er dapurlegt að sjá menn standa inni í miðju glerhúsinu með hnullungana í höndunum. Það geta allir bætt sig. Menn geta allir gert mistök og ég held að umræðan hér sé kannski bara áminning fyrir okkur öll um að vanda okkur. Ég hvet þingheim allan til að gera það þannig að þessi mikilvæga umræða afvegaleiðist ekki inn á einhverjar brautir sem við þurfum ekkert á að halda. Það er mikilvægt að réttar upplýsingar komi fram, að þegar menn standa hér í pontu vísi þeir í réttar upplýsingar. Svo geta menn bent á það (Forseti hringir.) með alls konar hætti og reynt að vanda sig eins mikið og hægt er.