þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Við erum að ræða væntanlega þjóðaratkvæðagreiðslu og mín ræða mun ekki vera með tilvitnunum í hvað menn eru að segja eða sögðu. Hún verður aðeins annars eðlis því ég eins og aðrir Íslendingar hef notað þennan tíma, hafandi haft ákveðna skoðun en viljað skoða þessar hliðar fram og til baka, til að fara efnislega í gegnum þær upplýsingar sem liggja fyrir. Ég er í hópi þeirra sem telja að þessi atkvæðagreiðsla sé auðvitað bara atkvæðagreiðsla um aðild. Með því að segja já í fyrirhugaðri atkvæðagreiðslu sé verið að staðfesta þá ákvörðun Alþingis árið 2009 að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Þeir sem segja nei eru að hafna þeirri ákvörðun og þetta þarf að liggja ljóst fyrir, fyrir utan allt annað. Allt tal um að það þurfi að kíkja í pakkann er til að villa um fyrir kjósendum að mínu mati.
Ísland þarf að breyta ýmsu til að verða aðili. Það er að mínu mati og a.m.k. helmings þjóðarinnar fullljóst. Viðræður um aðild að Evrópusambandinu eru því viðræður um aðlögun. En hvers vegna eigum við ekki að ganga í Evrópusambandið? Og hvers vegna eigum við að segja nei í fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu? Ein stærsta ástæðan er að Ísland ásamt Noregi og Sviss er eitt ríkasta land Evrópu ef miðað er við landsframleiðslu á íbúa. Það er engin tilviljun að ekkert þessara þriggja ríkja er í Evrópusambandinu. Ísland myndi fá talsverð framlög úr sjóðum Evrópusambandsins en það þyrfti að greiða miklu meira í þá. Varlega má giska á að kostnaður okkar umfram endurgreiðslur muni nema um 30 milljörðum kr. á ári en að auki verður mikill kostnaður af því að taka upp ýmis lög og reglugerðir sambandsins sem ætluð eru miklu stærri ríkjum en okkar. Það bætist í rauninni nýtt stjórnsýslustig við þau sem fyrir eru á Íslandi. Auk þessa eru fram undan gríðarlega kostnaðarsöm verkefni í Evrópusambandinu sem eiga að einhverju leyti eftir að lenda á sambandinu sjálfu. Við Íslendingar erum blessunarlega laus við flest það, t.d. eru mörg Evrópusambandsríki orðin stórskuldug og munu ekki geta greitt skuldir sínar sjálf. Á þeim hvíla gríðarlegar lífeyrisskuldbindingar. Evrópusambandið hyggst veita Úkraínu aðild sem fyrst en það verður mjög kostnaðarsamt að endurreisa það land. Evrópuríkin eru loksins að horfast í augu við að þau verða að kosta varnir sínar sjálf en ekki treysta aðeins á Bandaríkin. Önnur umsóknarríki en Ísland eru fremur fátæk á evrópskan mælikvarða og munu því þiggja meira úr sjóðum sambandsins en þau láta af hendi.
Auk þessara beinu fjárhagslegu þátta er það ófrávíkjanlegur þáttur í regluverki Evrópusambandsins að aðildarþjóðirnar hafi sameiginlegan aðgang að auðlindum innan sambandsins. Þar megi ekki mismuna eftir þjóðerni eða ríkisborgararétti. Fiskveiðistefna Evrópusambandsins er alfarið á valdsviði Evrópusambandsins sjálfs. Það merkir m.a. að Evrópusambandið tekur ákvarðanir um leyfilegan heildarafla í öllum fiskstofnum innan fiskimiða sambandsins, leyfileg veiðarfæri og allt annað því tengt. Evrópusambandið úthlutar síðan heildarkvóta í einstökum fiskstofnum til aðildarþjóðanna. Því er jafnan haldið fram að Evrópusambandið úthluti slíkum heildarkvótum samkvæmt reglunni um hlutfallslegan stöðugleika svo að einstakar aðildarþjóðir þurfi því ekkert að óttast, þær fái svipað magn og áður. En við þekkjum hvernig fiskveiðistefnan er í reynd og reglan um jafnan aðgang aðildarþjóðanna að fiskimiðunum er þáttur í hinu ófrávíkjanlega regluverki Evrópusambandsins. Ef veittar verða undanþágur þá verða þær vart varanlegar. Fiskveiðistefna Evrópusambandsins hefur ekki skilað góðum árangri. Hún hefur leitt til ofveiði og offjárfestingar í sjávarútvegi. Hér á landi er sjávarútvegur hins vegar sjálfbær og arðbær og skilar miklu í þjóðarbúið en er ekki baggi á ríkissjóði eins og tíðkast víðast annars staðar í Evrópu. Það væri grátlegt ef við, eftir að hafa náð yfirráðum yfir fiskimiðunum í nokkrum þorskastríðum, þyrftum að veita öðrum þjóðum aðgang að þeim.
Í Morgunblaðinu í gær segir hæstv. utanríkisráðherra að hin mikla óvissa í alþjóðamálum hafi bæst við sem rök fyrir því að ganga í ESB því að Bandaríkin séu ekki lengur reiðubúin að bera kostnaðinn af vörnum Evrópu og nefnir að nú þurfi Ísland skjól. Það er alveg rétt að Evrópuríkin hljóta í auknum mæli að efla varnir sínar og að þau verði að kosta þessar varnir sjálf og að ESB stofni jafnvel öflugan Evrópuher. Ef Íslendingar ganga í Evrópusambandið þá myndu þeir auðvitað eins og aðrar aðildarþjóðir þurfa að standa að slíkum her, kosta hann og leggja til hermenn í hann. Þeir gætu ekki skorast undan slíkum skuldbindingum. Íslendingar eru hins vegar svo vel settir að þeir hafa varnarsamning við Bandaríkin frá 1951 sem gerður var með skírskotun til Atlantshafsbandalagsins, sem bæði ríkin eru aðilar að. Samkvæmt þeim samningi ábyrgjast Bandaríkin varnir Íslands. Enginn ágreiningur er um það að hernaðarlegt mikilvægi Íslands hefur aukist undanfarin ár eða frá því að varnarliðið fór héðan af landi. Það eru engar líkur á því að Bandaríkin segi upp varnarsamningnum við Ísland. Við þurfum þess vegna ekkert skjól frá Evrópusambandinu, enda myndi það taka ár og áratugi að koma upp svo öflugum vörnum í Evrópu að ekki þyrfti á liðveislu Bandaríkjanna að halda ef í harðbakkann slægi. Ég sé því ekki annað en að þessi röksemd hæstv. utanríkisráðherra sé í rauninni rök gegn aðild. Ég leyfi mér að fullyrða að fæstir Íslendingar vilji taka þátt í kostnaði af Evrópuher og því síður að þeir vilji leggja til hermenn í slíkan her.
Enn ein rökin gegn aðild er að með samningnum um Evrópska efnahagssvæðið höfum við aðgang að Evrópumarkaðnum og margvíslegu samstarfi Evrópuríkja, t.d. á sviði vísindarannsókna. Við þurfum ekkert meira en þá segja stuðningsmenn aðildarumsóknarinnar á móti að við þurfum að eiga sæti við borðið þegar ákvarðanir eru teknar sem okkur varða. Við séum þegar í Evrópusambandinu að miklu leyti en án nokkurs ákvörðunarvalds. Þetta er að mínu mati einfaldlega ekki rétt og ég tek undir sjónarmið þeirra sem hafa sett þetta þannig fram að við séum einmitt ekki í Evrópusambandinu í þeim málum sem okkur varða mestu, sjávarútvegi og landbúnaði. Þar höfum við forræði, sérstaklega í sjávarútvegsmálum en líka að miklu leyti í landbúnaðarmálum. Þegar talað er um sæti við borðið merkir það væntanlega að einn af 28 framkvæmdastjórum yrði frá Íslandi og sex af 726 þingmönnum en minnstu ríki í Evrópu eru með sex þingmenn. Áhrifin yrðu hverfandi. Því má ekki heldur gleyma að Evrópuþingið fer í raun ekki með löggjafarvald í Evrópu þótt það samþykki eða staðfesti lög og reglugerðir frá framkvæmdastjórninni sem fer með hið raunverulega framkvæmdarvald. Ísland hefði enn minni áhrif í framkvæmdastjórninni en á hinu valdalausa Evrópuþingi. Af hverju í ósköpunum ætti að greiða 30–60 milljarða á ári fyrir slíkt áhrifaleysi?
Svo er það að við yrðum að taka upp evru og um leið væntanlega sætta okkur við hið mikla atvinnuleysi í Evrópu, aðallega þó meðal ungs fólks. Samkvæmt opinberum tölum er meðalatvinnuleysi ungs fólks í Evrópusambandinu nú 15,4%. Á Spáni er það 24,3%. Þá gætum við ekki lengur notað krónuna til að laga okkur að breyttum aðstæðum hverju sinni, t.d. óvæntum skakkaföllum eins og hefur tíðkast, en krónan hefur auðveldað okkur ákveðinn sveigjanleika eins og kom fram í bankahruninu þar sem við gátum fellt gengið og lækkað með því tilkostnað útflutningsfyrirtækja, en það gátu þær þjóðir ekki gert sem eru með evru. Er það tilviljun að nokkrar þjóðir í Evrópu hafa neitað að taka upp evru, þar á meðal tvær Norðurlandaþjóðir, Danir og Svíar? Þeir sem segja að vextir lækki með upptöku evru ættu að vita að við ráðum sjálf að mestu leyti hvaða vexti við höfum. Þeir eru háir núna til að slá á þenslu innan lands en ekki vegna þess að við erum með krónu og ekki evru.
Enn ein rökin gegn Evrópusambandsaðild er að Evrópusambandið árið 2026 er allt annað en það var árið 2009 þegar Alþingi samþykkti að sækja um aðild. Það hefur færst hratt í átt til miðstýringar, enda er það yfirlýst markmið margra forráðamanna sambandsins að það verði sambandsríki sem láti að sér kveða á alþjóðavettvangi, sambandsríki með eigin her. Það breytti miklu með Evrópusambandið þegar Bretland gekk úr því. Bretland var eina stóra ríkið í Evrópu sem var lýðræðisríki alla 20. öldina eins og Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, hefur bent á. Það er alveg rétt sem stuðningsmenn aðildar segja að miklir erfiðleikar hafa mætt Bretum eftir að þeir gengu úr Evrópusambandinu en þeir erfiðleikar eru að mestu leyti vegna þess að Evrópusambandið hefur gert þeim eins erfitt fyrir og það gat. Það sýnir að það getur orðið miklu erfiðara að ganga úr Evrópusambandinu en í það. Það ber einmitt líka að hafa í huga hvað gerist ef það kæmi í ljós eftir inngöngu að við hefðum gert mistök. Þá er erfitt eða jafnvel ókleift að ganga úr Evrópusambandinu og eftir að við værum gengin úr því yrði staða okkar miklu verri en hún er nú. Það er alveg rétt sem hæstv. utanríkisráðherra segir að nú er meiri óvissa í alþjóðamálum en oft áður. En þá er einmitt rétti tíminn til að doka við og skoða hvernig þróunin verður. Við erum ekki að missa af neinum strætó en það er hætt við að ef við hlaupum inn í þennan strætisvagn sem nú er rekinn upp að okkur þá förum við ekki inn í eitthvert skjól heldur festumst við í gildru þar sem við verðum að senda til Brussel marga tugi milljarða á ári, afsala okkur öllum okkar auðlindum og treysta á þær lítilfjörlegu varnir sem Evrópuríkin geta veitt.
Svo er það hvað verður um fríverslunarsamninga við aðrar þjóðir ef við göngum í Evrópusambandið. Þetta vald myndi Evrópusambandið taka af okkur. Núverandi fríverslunarsamningar okkar myndu falla niður en það eru einmitt miklir möguleikar á þessu sviði eins og ítrekað hefur verið bent á með fríverslunarsamningum við Kína, Indland, Brasilíu, Bandaríkin, Kanada og önnur stór ríki. Okkar utanríkisstefna alla 20. öldina var að selja fisk, svo málið sé einfaldað, og nú höfum við sem betur fer margt fleira að selja, ekki síst hugvit og mannauð. En hættan er sú að lokast inni í Evrópusambandinu, að skjólið sem talað er um verði gildra.
Síðan er mikilvægt að hafa í huga hvernig Evrópusambandið hefur breyst frá 2009 hvað það varðar að frá þeim tíma hafa milljónir manna frá Miðausturlöndum og Norður-Afríku streymt til Evrópu sem leitt hafa til ýmissa árekstra í samfélögunum eins og lesa má um í blöðum og horfa á í sjónvarpi á hverjum degi. Auðvitað fögnum við duglegum og vinnusömum innflytjendum sem skapa verðmæti og verða nýtir og góðir borgarar. En við viljum ekki innflytjendur sem koma til þess eins að stunda afbrot eða lifa á bótum og því síður innflytjendur sem neita að virða siði okkar og venjur, t.d. virðingu fyrir jafnrétti kynjanna og viðurkenningu á réttindum samkynhneigðra. Því er ekki að leyna að margvíslegar breytingar hafa orðið á samsetningu stærstu þjóðanna í Evrópu. Nú er svo komið að fólk þorir varla að ræða þennan vanda en götuóeirðir og uppgangur öfgamanna minna okkur daglega á hann. Við glímum vissulega við slík vandamál að einhverju leyti á Íslandi en þau myndu að mínu mati aukast við inngöngu í Evrópusambandið.
Að lokum ætla ég að nefna þau rök gegn því að ganga í Evrópusambandið að það hefur verið að dragast aftur úr bæði Bandaríkjunum og Kína. Hagvöxtur er lítill sem enginn í sambandinu. Þetta viðurkenna reyndar sumir helstu áhrifamenn Evrópusambandsins eins og Mario Draghi sem samdi fyrir nokkru umtalaða skýrslu um þetta sem ítrekað hefur komið til tals hér í þingsal og víðar. Ástæða þess að Evrópusambandið hefur dregist aftur úr er, eins og Draghi og fleiri segja, skriffinnskubáknið og reglugerðafarganið sem sambandinu fylgir. Sambandið hefur lagt þungar byrðar á atvinnulíf og reynir eins og hægt er að koma í veg fyrir að einstök aðildarlönd keppi um fjármagn og fyrirtæki með hagstæðu rekstrarumhverfi. Írum var t.d. bannað að lækka tekjuskatt á fyrirtæki úr 12,5%. Það er margt að varast og það eru þessir efnislegu þættir sem við þurfum að ræða og þurfum að átta okkur á að er verið að kjósa um. Viljum við þetta eða viljum við vera á þeim stað sem við erum í dag og halda áfram að þróast sem fullvalda ríki? Það er það sem við erum í rauninni að fara að kjósa um í komandi atkvæðagreiðslu.
Nú hef ég sett fram nokkrar röksemdir fyrir því að hafna aðild og segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Virðulegur forseti. Ég ætla aðeins að stikla á stóru um þær sem ég hef komið á framfæri: að aðild kostar a.m.k. 30 milljarða á ári, að fyrirsjáanlegur kostnaður kann að verða miklu meiri; að við Íslendingar myndum missa yfirráðin yfir fiskimiðum okkar; að við getum ekki treyst Evrópusambandinu fyrir vörnum okkar; að við þurfum ekki á því að halda því við höfum tryggt aðgang að Evrópumarkaði með aðildinni að Evrópska efnahagssvæðinu; að með upptöku evru myndi atvinnuleysi eflaust stóraukast og þá aðallega hjá ungu fólki; að Evrópusambandið hefur breyst stórlega frá 2009, aðallega í átt til miðstýringar; að erfitt yrði að ganga úr því kæmumst við að því að inngangan hefði verið mistök; að við myndum missa möguleikann á að gera fríverslunarsamninga við mörg stór ríki; að vandinn af hælisleitendum yrði enn meiri við aðild en hann er nú þegar og að Evrópusambandið er að dragast aftur úr öðrum ríkjum, ríkjasamböndum eða heildum eða hvað við viljum kalla það.
Margt fleira mætti auðvitað nefna en aðalatriðið er að við erum tiltölulega vel sett núna. Við höfum varnarsamning við Bandaríkin, aðild að Evrópumarkaði og yfirráð yfir auðlindum okkar. Ísland er á mótum Evrópu og Norður-Ameríku. Ekkert grannríkja okkar er í Evrópusambandinu, ekki Noregur, ekki Stóra-Bretland, ekki Kanada og Bandaríkin og það er engin tilviljun. Við verðum að líta til þess. Við eigum nú sem fyrr að horfa í báðar áttir, austur til Evrópu og vestur til Norður-Ameríku, en líka í aðrar áttir, versla við alla, vera vinir allra eða sem flestra en ekki þegnar neins þeirra, hvorki Bandaríkjanna né Evrópusambandsins.
Það er þessum efnislegu þáttum og rökum sem mig langar að koma inn í þessa umræðu. Ég er ekki í utanríkismálanefnd og náttúrlega er bara hluti þingmanna þar inni. En auðvitað erum við öll að fara yfir þessa hluti til að átta okkur á og svara rökum þeirra sem eru á annarri skoðun en stór hluti þingmanna og þjóðarinnar, helmingur a.m.k., er efins um þetta. Það er mikill ábyrgðarhluti að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu án þess að það liggi ljóst fyrir, án þess að það sé skýrt fyrir almenningi, að það sé kristaltært að við erum að fara í viðræður um aðlögun, að við erum að greiða atkvæði um aðild, já eða nei. Þetta þurfum við að leggja áherslu á og við þurfum að koma upplýsingum á framfæri og það er náttúrlega tekist á um hverjar þær eru. Það liggur fyrir svo mikið af gögnum, staðreyndum og greiningum og þeim verðum við að koma á framfæri, hvar sem við stöndum í þessu máli, og treysta þjóðinni til að taka upplýsta ákvörðun. Sú rödd sem ég læt hljóma hér er eins og hún er og stór hluti fólks er á þeirri skoðun að við höfum ekkert þarna inn að gera. Við erum í góðum málum og til hvers að fórna þeirri stöðu sem við erum í upp á eitthvað sem er að mínu mati ekki fýsilegt og að þetta skjól, sem hæstv. ráðherrar og aðrir eru að nefna að sé þarna inni, muni í raun og sanni reynast gildra fyrir okkur Íslendinga.
Ég vona svo sannarlega að almenningur sjái í gegnum þetta og sjái að það er verið að kjósa. Það er ekki verið að kíkja í einhvern títtnefndan pakka, það liggur alveg skýrt fyrir hver hann er. Við þurfum að aðlagast ef við ætlum að halda áfram viðræðum við ESB því það eru aðildarviðræður.