157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[13:06]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Rósu Guðbjartsdóttur fyrir ræðu sína sem mér fannst að mörgu leyti áhugaverð. Fyrst ber að fagna því að þingmaðurinn lítur á þetta sem tækifæri fyrir þjóðina til að segja sínar skoðanir á Evrópumálum og ég merkti alla vega stuðning hv. þingmanns við að atkvæðagreiðslan færi fram, sem er vel. En okkur greinir augljóslega að einhverju leyti á um hvaða tækifæri gætu falist í slíkri atkvæðagreiðslu, um það að hér sé eitthvað um að semja. Hér er því haldið fram að þetta séu aðlögunarviðræður og hrein atkvæðagreiðsla um það hvort við ætlum að ganga inn eða ekki.

Ég vil í þessu fyrra andsvari spyrja út í nokkra punkta sem fram komu í ræðu hv. þingmanns. Í fyrsta lagi varðandi þær varnir sem okkur stæðu til boða með hugsanlegri aðild og er vísað í viðtal við hæstv. utanríkisráðherra, sem ég viðurkenni að ég las ekki gaumgæfilega en ég sá að þetta viðtal hefði átt sér stað. Hún virðist hafa lesið það út úr því viðtali að hæstv. ráðherra hafi gefið í skyn að það kæmi til stofnunar Evrópuhers og að Ísland myndi taka þátt í honum yrði Ísland aðildarríki Evrópusambandsins. Ég ætla að leyfa mér að vísa til þess sem fram kemur í þeim kafla í áliti meiri hlutans sem varðar öryggis- og varnarmál þar sem er afdráttarlaust tekið fram að hugsanleg aðild myndi ekki fela í sér þátttöku Íslands í stofnun erlends herafla og aðildin myndi ekki leiða til stofnunar Íslandshers. Hvernig les hv. þingmaður þetta úr orðum hæstv. ráðherra?

Og í öðru lagi: Evrópuþingið er samkvæmt orðum þingmannsins valdalaust vegna þess að framkvæmdarvaldið er hjá framkvæmdastjórninni. Ísland myndi koma til með að eiga fulltrúa í framkvæmdastjórninni. Ég væri til í stutta útskýringu á ályktun þingmannsins hvað þetta varðar.