þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég þakka þingmanninum andsvarið. Jú, það er auðvitað óábyrgt því að munurinn á hagsæld og frammistöðu margra Evrópuríkja og heildarinnar annars vegar og síðan t.d. Bandaríkjanna og Kína í þeim efnum liggur fyrir þannig að það er óábyrgt að vera að búa til einhverja glansmynd af einhverju sem svo sannarlega ekki er og reglugerðafarganið er eitthvað sem maður óttast allra mest og er eitthvað til að hafa miklar áhyggjur af. Í rauninni ættum við að mínu mati að leita leiða til þess að reyna að aflétta ýmsum kvöðum sem við erum nú þegar látin gangast undir frekar en að fara alla leið og fá enn þá meira yfir okkur. Slíkt er að mínu mati bara algerlega ferlegt fyrir fyrirtæki og okkur sem búum í þessu landi. Ég ítreka það að maður óttast að þetta skjól sem er verið að segja að Evrópusambandið sé í efnahagslegu tilliti og varnarlegu tilliti og hvað það er — skjólið er í mínum huga gildra.