157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[13:22]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Rósu Guðbjartsdóttur fyrir prýðiserindi. Mig langar að vekja athygli hv. þingmanns á grein sem birtist á stjórnmálin.is 19. maí síðastliðinn þar sem m.a. er vitnað til orða Mörtu Kos stækkunarráðherra sambandsins í samtali við norska ríkisútvarpið þann 21. maí fyrir nánast sléttu ári síðan. Þar kemur fram, með leyfi forseta: „Þetta snýst að miklu leyti um það að aðlaga löggjöf umsóknarríkis að löggjöf Evrópusambandsins.“ Önnur tilvitnun, þar sem spurt er hversu hratt slíkar viðræður geti gengið fyrir sig, þá svarar Marta Kos:

„Hversu hratt viðræðurnar ganga fyrir sig fer eftir því hversu fljótt hvert ríki kemur á umbótum og aðlagast regluverki sambandsins. […] Markmið viðræðnanna er að umsóknarríkið taki upp regluverkið eins og það leggur sig.“

Herra forseti. Eins og það leggur sig. Í ljósi þessara afdráttarlausu ummæla stækkunarstjórans þá þykir mér eðlilegt að spyrja og ég hyggst jafnvel leggja þessa spurningu fyrir fleiri hér í dag til að fá mögulega fleiri útgáfur af svörum: Hefur eitthvað breyst í regluverki Evrópusambandsins? Hefur aðlögunarferlið fyrir ný umsóknarríki tekið miklum breytingum á þessu ári? Ef hv. þingmaður gæti varpað ljósi á það þá yrði ég þakklátur fyrir það.