157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[13:24]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (andsvar):

Forseti. Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Nei, það hefur sannarlega ekkert breyst og ef eitthvað er, samkvæmt því sem maður les og hefur kynnt sér — og það er sífellt að bætast við, eins og hér er vitnað til, greiningar og greinar eftir sérfræðinga og aðra sem að þessum málum koma — þá er þróunin frekar sú að aukin miðstýring er að eiga sér stað. Það hefur því svo sannarlega ekkert breyst hvað það varðar. Svo er líka dálítið mikið talað um að með því að fara þarna inn muni aukast og flæða hingað alls kyns fyrirtæki inn á markaðinn, verslanir og annað, það verði hagstæðara fyrir þau að koma hérna ef við erum í Evrópusambandinu. Maður skilur heldur ekki þann málatilbúnað. Við erum hér með ýmsar verslanir frá Evrópu, bara í gegnum það samstarf sem við erum þó í. Við erum með erlendar verslanakeðjur, bæði frá Evrópu og annars staðar frá, sem vegnar ágætlega hérna. Það að þær séu ekki enn fleiri er kannski frekar til komið vegna þess að við erum langt í burtu og flutningskostnaður er meiri við að flytja vörur hingað en á milli landa í Evrópu í lestum. Og það að þetta muni auka alls kyns viðskipti og lækka verð á matvöru, fatnaði og öðru, sem maður hefur líka heyrt fleygt fram, er í mínum huga bábilja. Það eru aðrir þættir sem hafa þar áhrif á. Aukin miðstýring og aukið reglugerðarfargan er eitthvað sem við Íslendingar eigum að forðast eins og heitan eldinn. Það er í rauninni bara það sem þetta gengur út á í svo miklum aðalatriðum. Við höfum það ágætt og til hvers að vera að fórna því fyrir þetta sem við erum að ræða hér í dag?