157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[13:28]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka annað andsvar. Já, um hvað er verið að semja? Það er í rauninni að mínu mati og þeirra mýmörgu sem eru sömu skoðunar að það er um fátt eða ekkert að semja. Aðalhagsmunamál okkar, auðlindamálin, sjávarútvegsmálin og landbúnaðarmálin, sérstaklega sjávarútvegsmálin — þar eru bara dæmin fyrir framan okkur. Það er ekkert um neitt að semja. Hér var annar þingmaður fyrr í dag sem spurði hvort hér væri um blekkingu að ræða í framsetningu þeirra sem ætla að standa fyrir þessari þjóðaratkvæðagreiðslu og að mínu mati er hægt að taka undir það. En fyrst og fremst er mjög rangt að vera að setja einmitt þetta í þann búning að það eigi nú að fara að kíkja í pakkann og semja um eitthvað því að það er verið að óska eftir því að þjóðin veiti ríkisstjórninni leyfi til að halda aðildarviðræðum áfram og þær eru ekkert annað en aðlögunarviðræður þannig að það er ekki um neitt að semja eftir því sem manni sýnist.