þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Ég þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur fyrir góða spurningu. Já, ég held að það væri miklu betra að bíða. Í raun og veru hefði ég helst viljað að við værum ekki að fara í þessa vegferð og ég efast um að Evrópusambandið breytist það mikið í framtíðinni að mér finnist rétt fyrir Ísland að fara í þessa vegferð. Núna finnst mér þetta alveg galin tímasetning því að við vitum hvernig Evrópusambandið er að dragast aftur úr og við erum vissulega í miklu betri málum en við vorum síðast. Ég held hins vegar að það sé augljóst að þessi atkvæðagreiðsla muni fara fram núna og ég er ekki að leggja til að hætt verði við hana. En ef ríkisstjórnin sér ljósið og hættir við þetta sjálf, þá mun ég styðja það. Ég mun auðvitað treysta þjóðinni til að kjósa en ég held að lykilatriðið sé að umræðan hér í þingsal verði virkilega góð svo að fólk viti hvað Evrópusambandið er raunverulega.