þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég er glöð að vera með ykkur hér. Ég var með ykkur í veiðigjöldunum í fyrra, ég kem alltaf inn í þessum stóru og skemmtilegu málum. Ég er sennilega ekki sú eina sem er með hausverk og finnst þetta yfirþyrmandi; ég veit ekki hvar ég á að byrja eða enda í þessu máli. En ég ætla samt að taka undir það með þingmanninum að báknið hræðir mig. Við sem erum fyrir austan og vestan nötrum einna mest og skjálfum á beinunum af því að við vitum hvað fjarlægð frá stjórnkerfinu þýðir; það er bara horft fram hjá okkur. Það er mjög erfitt fyrir okkur að hugsa til þess að stjórnkerfið fari að einhverju leyti, og stýringin, til Brussel frá Austurvelli; það er nógu lítið sem er hlustað á okkur hér, finnst okkur.
Ég velti bara fyrir mér hvaða forsendur þurfi að vera til staðar til að hægt sé að ná utan um þetta. Hvað þarf ég að vita til að geta tekið þessa ákvörðun? Ef ég er húsmóðir í Vesturbænum eða á Egilsstöðum, hvað þarf ég að vita? Hvaða upplýsingar þarf ég að fá til að geta tekið afstöðu? Þetta er svo ofboðslega stórt og mikið mál. Þá hugsar maður: Ókei, við skulum vanda til verka. Ég ætla ekki að ganga fram eins og ég viti ekki hvað sé að fara að gerast en finnst hv. þingmanni það liggja alveg skýrt fyrir fyrir húsmóður á Egilsstöðum hvaða upplýsingar hún þurfi að fá til að mynda sér skoðun í ágúst, hvernig hún eigi að geta tekið þessa ákvörðun?