þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Ég þakka hv. þingmanni svarið. Ég get tekið undir það og ég held að það sé mjög mikilvægt að við áttum okkur á því og það sé alveg skýrt hvaða forsendur meiri hlutinn hefur fyrir því að við eigum að ganga þarna inn og hvaða forsendur við viljum sjá og þetta sé vel ígrundað. Og ég velti því fyrir mér, af því að nú er talað um að ef það verður sagt já þá geti það kostað ríkið allt að 2 milljarða að fara í þessar viðræður: Hefði kannski verið skynsamlegra að nýta einhverja þá fjármuni í að undirbúa gögn og umræðu hérna innan lands betur fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna í staðinn fyrir að taka hana eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna, til að við upplifum að við séum að fá einhvern tíma til að mynda okkur upplýsta skoðun?