þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir góða ræðu. Í byrjun vil ég segja að ekkert umsóknarríki hefur fengið varanlegar undanþágur frá reglum ESB, ekkert umsóknarríki. En það sem mig langar að spyrja hv. þingmann um er: Hvað gerist ef við segjum já? Það stendur, með leyfi forseta, í þingsályktunartillögunni, svo ég vísi beint í það:
„Á það er gjarnan bent að aðildarviðræður við ESB snúist um að ný aðildarríki lagi sig að reglum sambandsins. Má þetta til sanns vegar færa, enda væri Ísland að ganga í ríkjabandalag með fyrirliggjandi reglum …“
Þetta heitir á íslensku aðlögun og á ekkert skylt við að kíkja í einhvern pakka. Ég spyr því hv. þingmann: Hver er eina leiðin til að koma í veg fyrir að við byrjum aðlögun að Evrópusambandinu í september á þessu ári?