157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[14:09]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég ætla að þakka hv. þm. Dagbjörtu Hákonardóttur kærlega fyrir að koma upp í andsvör við mig. Þótt mér þyki gott að við tökumst öll á hérna inni þá hefur að mínu mati stundum skort á að hv. þingmenn meiri hlutans komi hér upp. Hv. þingmaður spyr mig um EES-samninginn. Já, ég er hlynnt honum. Mér fannst ekki smart hvernig þeir fóru með okkur nýverið, það fannst mér ekki gott. Og meira að segja hef ég áhyggjur af því hvað þessi ríkisstjórn gerir ef hún fær nei í ágúst, hún er það mikið með Evrópusambandið á heilanum, en ég vona samt að hún verji EES-samninginn. Er EES-samningurinn hlaðborð? Ég myndi ekki segja að hann væri hlaðborð en engu að síður eru réttindi í EES-samningnum sem við höfum ekki nýtt nógu vel til þess að innleiða ekki.