þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og ég fagna því að það sé ekki að verða hér til einhvers konar andstaða við Evrópusamstarf, a.m.k. ekki á grundvelli EES-samningsins. Fyrir það er ég ákaflega þakklát vegna þess að það er nú bara þannig t.d. á norska þinginu að þar er að finna flokka sem hafa sínar skoðanir á skuldbindingum sínum þar. Ég er gríðarlega þakklát fyrir það.
Nei, þetta er ekki hlaðborð þegar við erum komin inn fyrir ramma Evrópska efnahagssvæðisins. — Ég myndi vilja, forseti, biðja um hljóð í salnum.
(Forseti (BergÓ): Ég vil biðja þingmenn um hljóð í salnum.)
Ég vil gjarnan fá að segja það að hér er títtnefnd Draghi-skýrslan þar sem komið er inn á samkeppnishæfni Evrópusambandsins eða öllu heldur skort Evrópusambandsins á henni. Á það þá ekki að stórum hluta við um íslenskar aðstæður, um það regluverk sem við erum skuldbundin til þess innleiða? Hv. þingmaður talar um tækifæri til að gera það ekki. Það hlýtur í sjálfu sér að vera mikil ógn við okkar samkeppnishæfni líka þegar ekki er sami fyrirsjáanleiki í regluverki hér á landi versus í Evrópusambandinu. Ég bið hv. þingmann um að taka það inn í myndina. (Forseti hringir.) En það er ekki hægt að nefna þessa skýrslu án þess að heimfæra hana yfir á íslenskar aðstæður.