157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[14:12]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Forseti. Þetta er nefnilega alveg rétt hjá hv. þm. Dagbjörtu Hákonardóttur. Það er stórkostlegt vandamál hvernig EES-gerðirnar og allt þetta er að koma hér á færibandi. Það er ekki þar með sagt að við viljum hætta með EES-samninginn. En það er alveg rétt að þetta smitar yfir í hann, þessi reglugerðarvæðing Evrópusambandsins, þannig að við getum verið þakklát fyrir það að vera ekki með allan pakkann heldur þurfum við bara að díla við það sem kemur frá EES. Það sem við getum líka gert miklu betur er að hætta gullhúðun. Þessi ríkisstjórn sagðist ætla að hætta því. Ég sit í efnahags- og viðskiptanefnd og ég get fullyrt það að hún er ekki hætt að gullhúða. Því miður, já, þetta hefur áhrif.

Vil ég halda í EES-samninginn? Já. Getur EES-samningurinn eða Evrópa gengið of langt? Ég ætla ekki að útiloka það að EES eða Evrópusambandið muni einhvern tímann ganga of langt þegar kemur að EES-samningnum og við þurfum þá að skoða þá stöðu. En þetta er eitthvað sem við þurfum virkilega að hugsa um.