157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[14:28]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Hann fór kannski meira yfir tæknileg atriði en ég hefði áhuga á að heyra meira frá hv. þingmanni vegna þess að þetta kemur ekki til af neinu, ríkisstjórnin er að leggja þetta fram til að hefja vegferð til að fara inn í Evrópusambandið. Það er því mjög mikilvægt að við ræðum um efnisatriðin, hvað felst í því að vera í Evrópusambandinu og hvaða afleiðingar það hefur í för með sér. Ef við einföldum málið þá gengur þetta út á það að þetta eru í rauninni viðræður um valdaframsal. Við höfum lagt mikið á okkur, Íslendingar, og ég held að allir séu sammála um að það var rétt ákvörðun hjá okkur að taka völd að fullu í okkar hendur og ekki bara það, það var ekki í nokkra tugi ára heldur í nokkur hundruð ár sem við höfðum fyrir því að fá fiskveiðiauðlindina í okkar hendur og við stýrum henni núna algerlega ein, líka þegar kemur að veiðum utan lögsögu þar sem við teljum að við eigum rétt á ákveðnum hluta. Ef við förum inn í sambandið erum við að afsala okkur hluta af löggjafarvaldinu, framkvæmdarvaldinu og dómsvaldinu. Svo í ofanálag munum við borga með okkur því að það liggur alveg fyrir að Íslendingar eru, sem betur fer, rík þjóð í samanburði við aðrar þjóðir og við munum alltaf þurfa að borga meira inn heldur en við fáum út úr einstökum sjóðum. Hv. þingmaður var bæjarstjóri og það er nú oft kvartað undan því á landsbyggðinni og annars staðar að það sé erfitt að eiga við Reykjavíkurvaldið, menn vilja jafnvel hafa meira um málin að segja. Nú þurfum við að eiga við Brussel-valdið ef við förum inn. Hefur hv. þingmaður engar áhyggjur af því að það gæti reynst örðugt fyrir íslenska þjóð?