þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir spurningarnar. Fyrst að því sem hv. þingmaður kallaði valdaframsal. Ég hef litið á þetta mál með þeim hætti, alveg frá því að ég fór að hafa skoðanir á Evrópusambandinu eða samskiptum við aðrar þjóðir, að engar þjóðir í samstarfi væru í rauninni að afsala sér einhverjum hlutum heldur væru þær í rauninni að tryggja það með samstarfi að þær fengju eitthvað til baka líka. Með því að eiga samskipti við aðrar þjóðir þá erum við að tryggja að við vinnum saman. Hér blandast oft inn í umræðan um fullveldi þjóðarinnar. Ég kannast ekki við það að aðrar þjóðir hafi áhyggjur af sínu fullveldi, enda snýst þetta um að við séum að deila fullveldi, við erum að deila sameiginlegum hagsmunum. Það tel ég vera það sem skiptir meginmáli. Ég lít ekki á þetta sem einhvers konar valdaframsal, ekki frekar en ég lít á það sem einhvers konar valdaframsal, samstarf okkar innan Atlantshafsbandalagsins. Ég tel það gríðarlega mikilvægt samstarf þó að í rauninni gæti einhver orðað það þannig, og menn hafa gert það hér á árum áður, og talað um að það hallaði á okkur þar sem menn gætu nýtt sér stöðu Íslands sem herlaust land. En ég lít á það sem mikilvægt samstarf. Varðandi Reykjavíkurvaldið þá held ég að ég hafi nú bara aldrei notað það orð og að ég sem bæjarstjóri úti á landi liti á Reykjavík sem einhvers konar vald yfir okkur hinum. Ég leit alltaf á Reykjavíkurborg sem ákveðinn samstarfsaðila, mikilvægan samstarfsaðila, og við lærðum mikið af þeim. Ég lít á það með sama hætti og samstarfið sem við eigum nú þegar í Evrópu, sem við myndum þá bara reyna að festa enn betur í sessi, við erum að tryggja öflugt og gott samstarf meðal þjóða.