þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Ég vildi gjarnan ræða þessa skoðun hv. þingmanns að það sé notkun á fullveldi að framselja dómsvald, framkvæmdarvald og löggjafarvald í skiptum fyrir sex þingsæti af yfir 700. En ég ætla að beina tali mínu að öðru. Minni hlutarnir hafa gert athugasemdir við að það hafi ekki farið fram greining eða kortlagning á hagsmunum Íslands í þessari vinnu í utanríkismálanefnd, það sé ekki skýrt hvort um skilyrði, sem sagt varnarlínur, sé að ræða og ekki er lagt til að leiðsögn meiri hlutans, þótt óljós sé, sé skrifuð inn í tillögutextann eins og var gert árið 2009. Reyndar hefur formaður utanríkismálanefndar sagt það hér að það sé hans skoðun að við eigum ekki að fara í skilyrtar viðræður. Hver er skoðun hv. þingmanns á þessu? Á ekki að gera ófrávíkjanleg skilyrði, m.a. varðandi auðlindir Íslands, og á ekki að gera það að hluta af tillögutextanum og kynna það fyrir kjósendum fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna?