157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[14:37]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta utanrmn. (Diljá Mist Einarsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Hv. þingmaður vísar til þess að þetta með skilyrðin hafi komið fram í þeirra máli og skipti miklu máli. Nei, það skiptir bara engu máli að þið hafið sagt það í einhverjum ræðum eða riti. Ég heyri það á hv. þingmanni að hann hefur ekki vilja til þess að tryggja þessi skilyrði og ekki vilja til þess að kynna þau fyrir kjósendum með þeim hætti. Annars var hv. þingmaður með ágæta yfirferð um upplýsingagjöf í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar. Gott dæmi um hið gagnstæða væri t.d. að lofa kjósendum 100 milljörðum á ári ef þeir segja já við ESB. En mig langar að spyrja út í eðli viðræðnanna sem eru auðvitað aðlögunarviðræður. Nú hefur loksins komið svar frá hæstv. utanríkisráðherra varðandi aðlögun Íslands að ESB á meðan á viðræðunum stendur og þar kemur fram að það komi til greina að aðlaga okkur að ESB umfram EES í viðræðunum. Ég spyr hv. þingmann, af því að þetta hefur ekki verið lína ykkar ESB-sinna hingað til: (Forseti hringir.) Hafið þið hugsað ykkur að koma heiðarlega fram við þjóðina hér eftir varðandi þetta atriði?