þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég hef ekki blandað mér mikið í umræðuna um hvort aðildarumsóknin hafi verið dregin til baka eða ekki, en ég hef nýlega fengið í hendur skjal frá Brussel á þýsku sem, ekki í minni þýðingu heldur betri þýðingu, hljómar svona: Ísland sótti um aðild að ESB í júlí 2009. Aðildarviðræður milli ESB og Íslands hófust í júlí 2010. Að beiðni Íslands var viðræðunum hætt í desember 2013. Í mars 2015 óskaði Ísland eftir því að vera ekki talið umsóknarríki að ESB og ráðið samþykkti þá beiðni.
Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort spurningin um að sækja um að nýju, sem meiri hluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar samþykkti, sé þá grundvölluð á því að það sé um nýja umsókn að ræða eða hvort hann telji að tillaga minni hlutans, þar sem sagt er að sækja um aðild að Evrópusambandinu, sé rökréttari (Forseti hringir.) þar sem ráðið hafi í raun samþykkt að Ísland væri ekki lengur umsóknarríki.