157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[14:41]
Horfa

Eiríkur Björn Björgvinsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni kærlega fyrir spurninguna. Þegar við fjölluðum um þetta í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd þá fengum við á fund nefndarinnar fulltrúa frá utanríkisráðuneytinu og við áttum, eins og utanríkismálanefnd, fund með Feneyjanefndinni þar sem þessir hlutir voru nefndir. Samkvæmt upplýsingum eins og þær voru lagðar fyrir okkur þá líta stjórnvöld á það þannig og Evrópusambandið líka að það sé enn þá — ég er að vitna í gögn sem voru lögð fyrir nefndina og á þeim upplýsingum byggjum við í rauninni þá ákvörðun sem við tókum — að umsóknin sé í rauninni enn þá í gildi. Þá teljum við mjög mikilvægt að það sé vitnað í það að við séum að horfa til fyrri viðræðna. En við leggjum áherslu á það að við séum ekki að byrja bara þar sem frá var horfið heldur séu hlutirnir skoðaðir allir frá grunni. Að því leytinu til lítum við á þetta sem nýjar viðræður.