157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[14:42]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta utanrmn. (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Að öðru, sem hv. þingmaður fór reyndar ágætlega yfir í sinni ræðu, það er sem sagt kynningin. Það er vinna okkar hérna í þinginu að fjalla um málið og samþykkja þjóðaratkvæðagreiðslu en síðan er það þjóðin sem tekur ákvörðun. Hefði ekki verið skynsamlegra af hálfu framkvæmdarvaldsins að auglýsa þá styrki sem þar voru í boði í staðinn fyrir að skammta þá úr hnefa? Ég spyr vegna þess að það er margt sem bendir til þess að þetta ferli hafi hafist löngu áður. Í drögum sem utanríkisráðuneytið sendi þessum aðilum í desember 2025, með mjög þröngum skilyrðum um hvernig eigi að kynna efnið, er eitt af skilyrðunum að það verði lokið við að nota alla fjármuni í júní 2026. En samkvæmt allri vitneskju allra í samfélaginu í desember 2025 þá stefndi í að þjóðaratkvæðagreiðslan yrði 2027. (Forseti hringir.) Mig langar að heyra álit hv. þingmanns á því hvort ekki hefði verið skynsamlegra að auglýsa og hvaða komment hann hefur um þessa tímalínu og þau skilyrði sem utanríkisráðuneytið virðist hafa sent þessum aðilum.