157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[14:45]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Eiríki Birni Björgvinssyni fyrir ágæta yfirferð á vinnu stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar og get tekið undir með orðum hans, vinnan í nefndinni gekk prýðilega. Mig langar samt sem áður að beina spurningu til hv. þingmanns í ljósi þess að ákaflega lítið var gert úr því hér á fyrri stigum þegar minni hlutinn hafði uppi verulegar efasemdir um að sú spurning sem upphaflega stóð til að leggja fram stæðist og væri nógu skýr. Mér liggur við að segja að það hafi verið gert grín að þessum athugasemdum. En í ljósi vinnu nefndarinnar kom eitthvað annað í ljós, stutt af landskjörstjórn, Feneyjanefndinni og lögmönnum og jafnvel fleiri gestum sem komu fyrir nefndina, og því langar mig að spyrja hv. þingmann hvort hann geti tekið undir það með mér að gagnrýni minni hlutans hafi átt rétt á sér.