þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Forseti. Nú hef ég ekki þessa tilvitnun hérna fyrir framan mig en ef ég hef skilið hana rétt er það einfaldlega svo að þegar við förum inn í samningaviðræður þá ganga samningaviðræðurnar út á það að reyna að ná sem hagkvæmustum samningum fyrir þjóðina og það munum við að sjálfsögðu gera. Við erum alveg meðvituð um að það er ákveðið regluverk sem Evrópusambandið vinnur eftir og að það eru hlutir sem Evrópusambandið mun þá koma með á móti, þannig að við munum auðvitað berjast fyrir því að okkar hagsmunir verði sem bestir og sem skýrastir. Eins og ég segi hef ég ekki tilvitnunina beint fyrir framan mig þannig að það hvort ég sé sammála henni eða ósammála, mér finnst ósanngjarnt að setja mig beint í þá stöðu. En ég vil bara ítreka þetta svar mitt að þegar við förum til viðræðnanna gerum við það með þeim hætti að vernda okkar hagsmuni og Evrópusambandið mun sjálfsagt verja sína og að við náum síðan að lokum einhverjum samningi sem tryggir það að auðlindir okkar séu tryggar. Að öðrum kosti munum við einfaldlega hafna samningnum.