þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Við ræðum hér í dag stærsta þingmál þessa löggjafarþings, mál sem varðar stöðu Íslands sem sjálfstæðs ríkis. Það varðar valdið til að taka ákvarðanir um eigin auðlindir, eigið atvinnulíf, eigin löggjöf og eigin framtíð. Þetta mál snýst um það hvort við teljum farsælast fyrir Ísland að halda áfram á þeirri leið sem hefur reynst okkur vel, í nánu samstarfi við önnur Evrópuríki á grundvelli t.d. EES-samningsins, Atlantshafsbandalagsins eða EFTA-samstarfsins, eða hvort við eigum að stíga inn í ríkjasamband þar sem endanlegt ákvörðunarvald færist frá íslenskum stjórnvöldum til sameiginlegra stofnana Evrópusambandsins. Þetta mál snýst um það og ekkert annað. Það snýst ekki um það hvort Ísland eigi að eiga gott samstarf við Evrópuríki. Við eigum að gera það og við höfum gert það með miklum árangri. Þetta snýst ekki um hvort Íslendingar eigi að fylgjast vel með því sem gerist á vettvangi Evrópusambandsins. Það eigum við að gera á hverjum degi og það gerum við. Spurningin er einfaldlega þessi: Hver á að fara með lokaákvörðunarvaldið í málefnum Íslands?
Virðulegi forseti. Þess vegna skiptir máli hvernig ríkisstjórnin vinnur þetta mál. Þess vegna skiptir máli hvernig spurningin er orðuð. Þess vegna skiptir máli hvaða upplýsingar þjóðin fær áður en hún er beðin um að veita stjórnvöldum umboð til að taka á ný upp viðræður við Evrópusambandið.
Í upphaflegri tillögu hæstv. utanríkisráðherra var spurt hvort halda ætti áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Sú framsetning var gagnrýnd og það réttilega. Hún gaf til kynna að aðildarferlið væri enn í biðstöðu og að aðeins þyrfti að hefja á ný þar sem frá var horfið. Feneyjanefndin hefur lagt áherslu á skýrleika, skiljanleika og nákvæmni spurninga í þjóðaratkvæðagreiðslum. Landskjörstjórn hefur einnig bent á mikilvægi þess að kjósendur fái skýrar upplýsingar, bæði um hvað gerist ef spurningin er samþykkt og hvað gerist ef henni er hafnað. Þegar Alþingi ákveður að leggja mál fyrir þjóðina ber Alþingi ábyrgð á því að spurningin sé skýr og forsendur séu ljósar. Við getum ekki sagt: Þjóðin ræður, en forðast svo að segja þjóðinni hvað hún er í raun að taka ákvörðun um.
Nú liggur fyrir að meiri hluti utanríkismálanefndar leggur til að orðalaginu verði breytt. Nú á að spyrja hvort Ísland eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Það er auðvitað skýlaus viðurkenning á því að upphaflega orðalagið stóðst ekki kröfur um skýrleika. En, virðulegi forseti, breyting á orðalagi leysir ekki allan þann vanda sem ríkisstjórnin er að koma okkur í. Það er vissulega betra að spyrja þjóðina hvort við eigum að hefja viðræður á ný frekar en að láta eins og órofið ferlið sé enn í gangi. En eftir stendur stóra spurningin: Hvað erum við að spyrja þjóðina um í raun og veru? Það er ekki nóg að laga orðalagið í spurningunni ef ríkisstjórnin neitar enn að tala skýrt um efnið sjálft. Það er ekki nóg að breyta umbúðunum ef innihaldið er enn óljóst. Það er ekki nóg að segja að þjóðin viti sínu viti. Auðvitað veit þjóðin sínu viti og einmitt þess vegna á hún rétt á upplýsingum. Einmitt þess vegna á hún rétt á að stjórnvöld tali hreint út og komi heiðarlega fram við þjóðina.
Virðulegi forseti. Hæstv. forsætisráðherra hefur sagt að þjóðin eigi að fá að ráða. Ég tek undir það að þjóðin eigi að ráða. En þjóðin á ekki að vera beðin um að ráða í þá upplýsingaóreiðu sem stafar frá ríkisstjórninni sjálfri. Þjóðin á ekki að vera beðin um að veita ríkisstjórninni umboð til viðræðna án þess að ríkisstjórnin svari grundvallarspurningum um hvað þær viðræður fela í sér í raun. Ríkisstjórnin segir að fyrst eigi að kjósa um viðræður og síðar um aðildarsamning. Það hljómar einfalt. Saklaust fyrsta skref. En það er það alls ekki. Það er pólitísk yfirlýsing út á við og inn á við. Það er stefnumarkandi ákvörðun um að Ísland hyggist ganga til formlegs aðildarferlis með það að markmiði að ganga í Evrópusambandið. Aðildarviðræður við Evrópusambandið eru ekki ferð á markað þar sem Íslendingar geta gengið á milli borða og valið það sem þeim líkar. Umsóknarríki ganga ekki inn í þetta ferli sem jafn réttháir samningsaðilar um grunnskipulag sambandsins. Aðildarviðræður snúast öðru fremur um hvernig umsóknarríki tekur upp fyrirliggjandi regluverk sambandsins. Þetta kemur skýrt fram, bæði á heimasíðu framkvæmdastjórnar ESB og í þeim samningsramma sem sambandið setti fyrir aðildarviðræður Íslands og ESB árið 2010. Ríkisstjórnin getur ekki skautað fram hjá því að þetta eru aðildarviðræður. Þær fara fram á grundvelli regluverks Evrópusambandsins, samningsramma þess og þeirra skuldbindinga sem umsóknarríki þurfa að undirgangast líkt og öll 27 sambandsríkin hafa nú þegar gert. Kjarninn er því þessi: Evrópusambandið er ekki fríverslunarsamningur, það er ekki EFTA eða EES. Að ganga í ESB er ekki eins og að undirrita samning milli ríkja sem halda öllu endanlegu valdi hjá sér. Aðild að Evrópusambandinu felur í sér að hluti löggjafarvalds, framkvæmdarvalds og dómsvalds flyst að verulegu leyti til sameiginlegra stofnana. Það er rétt lýsing á eðli sambandsins og það er ekki hræðsluáróður að fara með slíkar staðreyndir.
Virðulegi forseti. Það er hér sem mesti misskilningurinn í umræðunni birtist. Stuðningsmenn aðildar tala gjarnan eins og valið standi á milli þess að vera með Evrópu eða á móti Evrópu. Það er rangt. Ísland hefur tekið þátt í evrópsku samstarfi af ábyrgð í áratugi. Við erum í EES, við erum í Schengen, við erum í EFTA, við erum í NATO, við eigum víðtæk samskipti við Evrópusambandið og aðildarríki þess. Við stöndum með lýðræðisríkjum Evrópu þegar á reynir. Við eigum sameiginlega hagsmuni á mörgum sviðum. En samstarf er ekki það sama og sambandsaðild. Það er munur á því að gera samning við önnur ríki og því að færa endanlegt ákvörðunarvald til sameiginlegra stofnana Evrópusambandsins. Það er ekki það sama að eiga sæti við borðið í samvinnu fullvalda ríkja og að bindast regluverki þar sem meiri hluti annarra ríkja getur mótað niðurstöðu sem hefur bein áhrif hér á landi.
Í dag hefur Ísland sjálfstætt sæti við samningaborðið þegar samið er um nýtingu sameiginlegra fiskstofna í Norður-Atlantshafi. Við aðild að Evrópusambandinu myndi það sæti færast til sambandsins. Það er munur á því að taka þátt í samstarfi á eigin forsendum og því að verða hluti af kerfi þar sem forsendurnar eru að stórum hluta ákveðnar innan stofnanakerfis þar sem Ísland hefði ekki neitunarvald í mikilvægum hagsmunamálum þjóðarinnar. Þessi munur hefur skipt Íslendinga máli í langan tíma.
Eftir að Íslendingar öðluðust frelsi og fullveldi er saga okkar saga þjóðar sem hefur sótt út í heim, verslað við aðra, barist fyrir aðgangi að mörkuðum, byggt upp alþjóðleg tengsl og tekið þátt í samstarfi við aðrar þjóðir. En við skulum jafnframt minnast þess að saga okkar er einnig saga þjóðar sem um aldir bjó við erlend yfirráð áður en hún öðlaðist langþráð sjálfstæði. Við börðumst ekki í 100 ár fyrir þessum völdum til þess eins að láta þau af hendi einmitt þegar þau skipta mestu máli.
Virðulegi forseti. Þetta sést vel þegar kemur að sjávarútvegsmálunum. Ríkisstjórnin hefur sagt að hún muni ekki skrifa undir samning sem feli í sér afsal á forræði Íslendinga yfir fiskveiðiauðlindinni. Það er stór yfirlýsing. En þá verður ríkisstjórnin líka að svara einni einfaldri spurningu: Mun ríkisstjórnin hafna samningi sem felur í sér að Ísland verði hluti af sameiginlegri sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins? Um þetta höfum við margoft spurt án þess að fá skýr svör frá ríkisstjórninni. Sameiginlega sjávarútvegsstefnan er hluti af grunnkerfi sambandsins. Á sviði verndunar lífrænna auðlinda hafsins fer Evrópusambandið með óskiptar valdheimildir. Það er hluti af svokölluðum einkarétti sambandsins skv. 3. gr. sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins. Aðildarríki geta ekki rekið sjálfstæða fiskveiðistefnu utan þess ramma sem sambandið setur.
Í svokölluðum Factortame-málum felldi dómstóll ESB niður breskar reglur sem áttu að tryggja yfirráð Breta yfir eigin aflaheimildum og takmarka aðgang erlendra aðila að breskum fiskveiðum. Niðurstöður þeirra mála eru enn hluti af regluverki sambandsins sem aðildarríkjum ber að virða. Dómaframkvæmdin sýnir hvernig meginreglur sambandsins geta gengið framar þjóðlegum ráðstöfunum á þessu sviði þegar á reynir. Það þýðir ekki að Íslendingar myndu ekki hafa neina rödd. Að sjálfsögðu hefðu Íslendingar einhverja aðkomu sem aðildarríki. En það er ekki það sama og hafa endanlegt ákvörðunarvald líkt og við höfum nú. Það er ekki það sama og að Alþingi, íslensk stjórnvöld og íslenska þjóðin ráði hvernig við viljum haga þessum málum. Jú, það er hægt að semja um aðlögunartíma. Það er hægt að ræða tæknilegar útfærslur. Það er hægt að ræða tímabundnar ráðstafanir. En það er allt annað að halda því fram að Ísland geti orðið aðili að Evrópusambandinu og samt staðið varanlega utan sameiginlegrar sjávarútvegsstefnu sambandsins. Þeir sem halda því fram bera sönnunarbyrðina og hingað til hefur ríkisstjórnin komist hjá því að benda á eitt einasta ríki sem hefur fengið varanlega undanþágu þegar kemur að sjávarútvegi. Það átti einnig við um Noreg í aðildarviðræðum 1994 þrátt fyrir að Norðmenn væru eitt stærsta sjávarútvegsríki Evrópu. Þeir fengu enga varanlega undanþágu frá sameiginlegu fiskveiðistefnunni og var það ein helsta ástæðan fyrir því að norska þjóðin hafnaði aðildarsamningnum í þjóðaratkvæðagreiðslu. Hvernig ætti slíkt að ganga upp innan sáttmála Evrópusambandsins, innan dómaframkvæmdar þess og gagnvart öllum aðildarríkjum sambandsins sem þyrftu að samþykkja niðurstöðuna? Þessu hefur ekki verið svarað og þangað til það er gert á þjóðin rétt á að heyra hið augljósa; aðild að Evrópusambandinu hefði raunverulegar afleiðingar fyrir yfirráð Íslendinga yfir sjávarútvegsmálum okkar.
Virðulegi forseti. Þetta mál snýst einnig um fleiri málaflokka sem standa utan EES-samningsins og eru meðal mikilvægustu hagsmunamála okkar Íslendinga. EES-samningurinn hefur reynst Íslandi vel. Hann veitir íslenskum fyrirtækjum aðgang að innri markaði Evrópu á mikilvægum sviðum. Hann hefur stutt við útflutning, atvinnu, fjárfestingu og lífskjör okkar, en hann gerir það án þess að Ísland verði hluti af sameiginlegri sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins, án þess að Ísland verði hluti af sameiginlegri landbúnaðarstefnu Evrópusambandsins, án þess að Ísland falli inn í tollabandalag sambandsins og án þess að við gefum frá okkur sjálfstæða rödd í mikilvægum utanríkisviðskiptum. Það er styrkur EES-samningsins. EES-samningurinn var frá upphafi hugsaður sem leið til að sameina aðgang að innri markaði Evrópu við áframhaldandi fullveldi Íslands yfir lykilauðlindum og mikilvægum málaflokkum á borð við sjávarútveg, landbúnað, tollamál og sjálfstæðan samningsrétt gagnvart öðrum ríkjum. Við eigum að verja þann samning og það munum við Sjálfstæðismenn gera. Við eigum að vera virk, skýr og málefnaleg í samstarfi við Evrópusambandið. En það er engin nauðsyn að svara öllum áskorunum samtímans með því að framselja meira vald, eins og mér finnst ríkisstjórnin gera á þessum óvissutímum sem við nú lifum.
Spurningin á að vera einföld sem á að spyrja þjóðina að í þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst. Spurningin á einfaldlega að vera: Vilt þú ganga í Evrópusambandið? Já eða nei? Við eigum að vinna með Evrópu, versla við Evrópu, standa með Evrópu þegar á reynir, en ákvörðunarvaldið um framtíð Íslands á áfram að vera á Íslandi.