157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[15:11]
Horfa

Frsm. meiri hluta utanrmn. (Pawel Bartoszek) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka svarið. Það veldur mér dálitlum vonbrigðum að hv. þingmaður, sem var sú sem lagði upprunalega fram þá tillögu að leita eftir áliti Feneyjanefndar á því hvernig spurningin yrði orðuð, leggi síðan til þá einu tillögu sem Feneyjanefndin hafnar algjörlega fyrir fram án þess að vera einu sinni spurð um álit, þ.e. hvort það eigi að spyrja um aðild. Ég hlýt því að spyrja hv. þingmann hvort hún beri virðingu fyrir Feneyjanefnd Evrópuráðsins eða hvað skýrir það að hún leggi til eitthvað sem er svo andstætt því sem Feneyjanefndin lagði til. Ég ítreka þá aftur spurninguna og ef þingmaðurinn vill ekki nota tímann í að svara þeirri spurningu þá finnst mér hin spurningin mikilvæg af því að hún er ekki flókin. Ég þarf eins og aðrir þingmenn að taka afstöðu til þessarar breytingartillögu og því vil ég fá svar við þessari spurningu: Ef Sjálfstæðisflokkurinn segir já og allur þingsalur segir já við þessari breytingartillögu, mun Sjálfstæðisflokkurinn þá styðja þjóðaratkvæðagreiðslu í lokin? Ef þingheimur samþykkir þessar breytingartillögur, fáum við þá já frá Sjálfstæðisflokknum þegar tillagan verður afgreidd í lokin? Mér finnst þetta ekki ósanngjörn spurning. Mögulega kann mín afstaða til þessarar breytingartillögu — mér finnst þessi útgáfa af spurningunni síðri en sú sem meiri hluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar leggur til en ekki ótæk — að ráðast af því hvort við séum að breikka sátt í þinginu um málið.

Í framhaldi af því langar mig líka að spyrja: Fari svo að þingið samþykki hér í breiðri sátt tillögu um þjóðaratkvæði og fari svo að niðurstaðan úr því verði já — ef niðurstaðan verður nei þurfum við ekki að ræða frekar — telur Sjálfstæðisflokkurinn sig þá skuldbundinn af niðurstöðu þeirrar þjóðaratkvæðagreiðslu? Mun Sjálfstæðisflokkurinn, ef hann kemst til valda, halda aðildarviðræðum áfram og koma heim með samning fyrir þjóðina til að segja já eða nei við?