157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[15:13]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil fyrst fá að segja að þessi tillaga minni hlutans byggir einmitt á niðurstöðu Feneyjanefndarinnar og það ætti hv. formaður utanríkismálanefndar að vita. Svo að ég svari spurningunni sem til mín var beint, varðandi þjóðaratkvæðagreiðsluna og þær breytingartillögur sem við erum að leggja fram, þá er það ekkert launungarmál að við Sjálfstæðismenn hefðum ekki sett þetta mál á dagskrá. Við hefðum ekki sett aðild að ESB á dagskrá. Í þeim efnum vorum við reyndar sammála forsætisráðherra ríkisstjórnarinnar sem hefur margsagt, og margsagði í aðdraganda kosninga, að þetta væri ekki forgangsmál Samfylkingarinnar, væri það bara alls ekki, og þau myndu ekki leggja af stað í þessa vegferð nema það væri skýrt ákall frá þjóðinni, skýrt ákall frá launþegahreyfingunum, frá atvinnulífinu o.s.frv. Það hefur bara ekkert ákall verið úti í samfélaginu, ekkert ákall nema frá Viðreisn. Við viljum því enga ábyrgð bera á þessu máli og ætlum ekki að bera neina ábyrgð á þessu máli né þeim vinnubrögðum sem höfð hafa verið uppi í meðförum þessa máls. Það er illa unnið, að okkar mati, hér í þinginu. Okkur hefur þótt þinginu vera sýnd óvirðing í meðförum þessa máls en við munum að sjálfsögðu ekki standa í vegi fyrir því að þjóðin fái að kjósa um þetta mál. Það er klifað á því að við séum eitthvað hrædd við þjóðina, við erum það bara alls ekki. Við munum ekki standa í vegi fyrir því að þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram en við hörmum mjög þann asa og þann brussugang sem hefur verið í meðförum þessa máls af hálfu ríkisstjórnarinnar.