þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Mér þykir mjög leitt hvernig stjórnarþingmenn misskilja orð mín. Ég var alveg kýrskýr í svari mínu til hv. formanns utanríkismálanefndar hér áðan: Þetta er ykkar mál, þetta er ykkar mál, og við ætlum ekki að bera neina ábyrgð á því. Þið þurfið ekkert að hafa áhyggjur af því hvernig við greiðum atkvæði hér í þingsal. Ég held að stjórnarþingmenn ættu frekar að hafa áhyggjur af því hvernig þeir ætla að greiða atkvæði. Ætla þeir þá að styðja þá tillögu að breyta dagsetningunni? Ég myndi gjarnan vilja fá svar við því hér frá hv. þingmanni. Munu stjórnarþingmenn, þetta eru þrjár breytingartillögur, einnig styðja þá tillögu sem hér er lögð fram um að breyta spurningunni þannig að hún verði skýrari? Hvernig ætla stjórnarþingmenn að svara því? Ætla stjórnarþingmenn hér að svara því að það liggi engin skýr samningsmarkmið fyrir? Engin raunveruleg hagsmunagreining hefur farið fram í undanfara þessa máls, engin. Við erum að ræða hér eitt stærsta mál lýðveldisins, síðan lýðveldið var stofnað, og óvirðingin er svo mikil af hálfu stjórnarliða að þeir telja sig ekki einu sinni þurfa að leggja fram markmið, hagsmunagreiningar eða einhverjar varnarlínur fyrir hönd Íslands. Mér finnst það ótrúlega lélegt. Það hafði þó ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur metnað til að gera á sínum tíma. Metnaðurinn er enginn nú þegar þetta mál er lagt fram. Ég ætla að fá að ítreka það að við erum ekki, eins og stjórnarmeirihlutinn hefur ítrekað sagt, í einhverjum saklausum göngutúr um stígakerfi Evrópusambandsins. Það er mikil skuldbinding sem þessi þjóðaratkvæðagreiðsla felur í sér. Þetta er hluti af aðlögunarferli að inngöngu í Evrópusambandið. Ég get ekki sagt þetta skýrar.