þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Hér er því gjarnan haldið fram að samningsmarkmið sem lögð eru fram í áliti meiri hluta utanríkismálanefndar séu ekki til staðar. Ég hvet hv. þingmann til að renna aftur yfir 5. kafla um sjávarútvegsmálin. Engin hagsmunagreining og engin markmiðasetning og það að við séum á einn eða annan hátt að draga úr því sem gert var 2009 í uppleggi þingsins þá — ef eitthvað er þá erum við að gefa í. Hér er talað sérstaklega um sérstakt íslenskt fiskveiðistjórnarsvæði. Þetta eru rosalega metnaðarfull markmið og við erum stolt af því. Við eigum að gera ýtrustu kröfur fyrir íslenska hagsmuni. Ég spyr Sjálfstæðisflokkinn: Ætlar hann að koma með okkur í það að gera þessi markmið? Ef þessi markmið eru svona ótrúlega illa orðuð og óljós, hvar eru þá fingraför Sjálfstæðisflokksins í því að leggja þessar línur? Ég hef lítið séð frá Sjálfstæðisflokknum um það hvernig þetta hagsmunamat eigi að líta út ef það er ekki til staðar. Það er svo sannarlega til staðar; nýting deilistofna, sveigjanleiki varðandi loðnuna, erlend fjárfesting — það þarf bara að lesa þetta í álitinu. En vegna þess að formaður Sjálfstæðisflokksins, hv. þingmaður, segir að þetta sé ekki þeirra mál, sé ekki mál Sjálfstæðisflokksins — ég get alls ekki sagt neitt til um það hvernig okkur tekst til um samninga um að ljúka þessu máli en það eru þrír takkar á borðunum okkar og ég spyr hv. þingmann: Á hvaða takka ætlar hv. þingmaður að ýta ef til þess kemur að þessi breytingartillaga verður samþykkt?