þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Hér spyr hv. þingmaður hvort við ætlum í þá vegferð með ríkisstjórninni að bæta þetta mál. Við erum búin að vera í vegferð með ríkisstjórninni að reyna að bæta þetta mál með öllum mögulegum hætti. Það hefur ekki verið hlustað á eitt einasta orð sem sagt hefur verið af hálfu minni hlutans í utanríkismálanefnd. Það á bara að keyra þetta mál í gegn án almennilegrar umræðu, án þess að upplýsa þjóðina og meira að segja hefur forsætisráðherra sagt hér að þjóðin þurfi ekki að verða sérfræðingar í Evrópusambandinu áður en hún gengur til kosninga, til þessarar þjóðaratkvæðagreiðslu. Ein breytingartillaga sem lögð er til af hendi minni hlutans er: Ætlar ríkisstjórnin að kynna samningsskilyrðin fyrir þjóðinni? Ætlar hún að gera það? Ég varpa þeirri spurningu til baka: Fær þjóðin að vita? Hvar er þessi mikli metnaður ríkisstjórnarinnar sem hv. þingmaður talar hér um? Hvar liggur hann? Ég get ekki séð að það liggi mikill metnaður í þessu máli. Þegar málið var fyrst lagt fram á þingi í byrjun mars þá var greinargerðin örfáar blaðsíður, með einu stærsta hagsmunamáli íslensku þjóðarinnar. Hér er sífellt klifað á þessu: Treystið okkur til að fara til Brussel og halda á ykkar málum.
Virðulegi forseti. Ég hef alla tíð sagt að ég treysti þjóðinni til að greiða atkvæði í þessu máli en það er mjög langt frá því að ég treysti ríkisstjórninni til þess. Ég ætla að ítreka það sem ég sagði: Samningsmarkmið liggja ekki fyrir. Það virðast vera flokkspólitískar ástæður fyrir þessari vegferð en ekki kalt hagsmunamat fyrir okkur Íslendinga því að það hefur engin hagsmunagreining átt sér stað. Engin.