157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[15:25]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Ég hef kosið að nálgast umræðuna um Evrópusambandið og þá þjóðaratkvæðagreiðslu sem við stefnum á að halda í sumarlok hvorki af ótta né óskhyggju. Við vitum að það er að mörgu að huga ef við hefjum aðildarviðræður við ESB að nýju. Í áratugi hefur í stjórnmálunum verið tekist á um hvort það sé best fyrir Ísland að ganga til samninga við ESB, nú eða ekki. Nú á að fela þjóðinni að ákveða sjálf hvort það eigi að halda áfram aðildarviðræðunum. Fáist já í þjóðaratkvæðagreiðslunni er verkefnið að ná sem allra bestri niðurstöðu fyrir Ísland. Við höfum nú þegar tekið upp mikið af hinu samevrópska regluverki í gegnum aðild okkar að EES-samningnum en alls falla 21 af 35 samningsköflum aðildarviðræðna að hluta eða í heild undir gildissvið hans. Það er þó ljóst að samtal um ákveðna hluti regluverksins verður þyngra og þar er líka mikið undir. Landbúnaðar- og byggðamál er einn þeirra málaflokka sem standa utan EES-samningsins og líklegt er að það verði helst rætt um það í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar í sumar. Umræðan er þegar farin af stað, aðallega af hálfu þeirra sem velkjast ekki í neinum vafa um að aðild að ESB muni kalla fram hörmungar yfir íslenskan landbúnað og landsbyggðina eins og hún leggur sig. Já, það væri agalegt, en ég er ekki hreint sannfærð um það. Á dögunum las ég grein í Bændablaðinu eftir Torfa Jóhannesson, framkvæmdastjóra Nordic Insights. Hún er öfgalaus. Höfundurinn leitast við að fá lesandann til að ígrunda stöðuna. Torfi skrifar að það sé, með leyfi forseta, alls ekki auðvelt að spá fyrir um hvað ESB-aðild muni þýða fyrir landbúnað á Íslandi og segir svo að færa megi sterk rök fyrir því að Ísland þyrfti annars konar heimildir en Finnland og Svíþjóð hafi fengið til að styrkja landbúnað norðan 62. breiddargráðu sérstaklega svo tryggja megi matvælaframleiðslu og fæðuöryggi landsins. Torfi segir að við vitum ekki hvort það takist eða hvernig þannig heimildir myndu líta út.

Þetta, frú forseti, langar mig að vita. Það er margt gott og gagnlegt dregið fram í áðurnefndri grein en í lok hennar dregur Torfi saman hvernig verkefnið fram undan lítur út í hans augum. Hann segir ESB-kerfið vera móttækilegt gagnvart rökum sem snúa að hvoru tveggja, fæðuöryggi og byggðaþróun, sem þýði, með leyfi forseta, að aðildarviðræður muni ekki snúast um að finna undanþágur frá gildandi reglum heldur móta séríslenskt fyrirkomulag innan rammans sem tryggi ásættanleg rekstrarskilyrði landbúnaðar, byggðafestu og fæðuöryggi. Ljóst er að kerfið myndi breytast en verkefnið í aðildarviðræðunum væri að láta það virka fyrir íslenskar aðstæður.

Færum okkur nú frá þessari gagnlegu greiningu Torfa á stöðunni og förum aðeins yfir hvernig stjórnarandstaðan, eða hluti hennar í það minnsta, hefur hagað málflutningi sínum í þessu máli. Á sumum er að skilja að ef við förum í aðildarviðræður sé ekkert um að semja. Þær séu einfaldlega aðlögunarviðræður þar sem við þurfum að kyngja öllu sem ESB hefur upp á að bjóða. En þetta er bara ekki rétt. Það er um marga hluti að semja við Evrópusambandið og það skiptir okkur miklu máli að halda vel á spöðunum. Ég mun ekki sjálf samþykkja samning sem ég tel ekki vera góðan fyrir Ísland. En ég vil fá að sjá slíkan samning og við eigum skilið að fá samning á borðið til að geta metið hann með yfirveguðum hætti, metið áhrifin, m.a. með tilliti til landbúnaðar og byggðaþróunar. Það er einhver undarleg leyndarhyggja sem felst í málflutningi þeirra sem vilja ekki kanna hvernig okkur gæti vegnað innan Evrópusambandsins og hvernig aðild myndi breyta stuðningskerfi okkar, til að mynda í landbúnaði. Við vitum öll að núverandi stuðningskerfi landbúnaðarins eru ekki fullkomin. Gæti aðild að Evrópusambandinu leitt til ákveðinna breytinga fyrir íslenska bændur? Gæti sá stuðningur við íslenskan landbúnað sem kæmi í gegnum sameiginlegu landbúnaðarstefnuna verið nægilegur til að vega upp á móti afnámi tollverndar? Hver eru svo tækifærin? Við þurfum líka að fá að sjá það, kannski sérstaklega fyrir sauðfjárbændur sem myndu eiga greiðari aðgang að mörkuðum Evrópu með sína ótrúlegu gæðavöru sem hefur þegar fengið verndaða upprunamerkingu innan ESB. Íslenskt lambakjöt er lúxusvara og yrði markaðssett sem slík og eftir því sem ég best veit hefur Evrópa ekki komist í kynni við íslenskt smjör. Það væri gríðarlegt tækifæri fyrir Evrópu að komast í kynni við, vil ég segja, hið ótrúlega íslenska smjör.

Við þurfum að fá að vita þetta, sama hvar í samfélaginu við stöndum, fá okkar færasta fólk í samninganefndir og útskýra sérstöðu Íslands á öllum sviðum og reyna að ná fram lausnum sem henta Íslandi.

Byggðastefna ESB ætti líka verið álitlegur kostur fyrir Ísland og landsbyggðina. Markmiðið með henni er að draga úr efnahagslegum, félagslegum og landfræðilegum ójöfnuði milli svæða í Evrópu. Hér tölum við um í þessum þingsal að setja upp byggðagleraugun sem er mjög gagnlegt, en byggðastefna ESB á að styrkja grundvöll fjölbreyttrar atvinnustarfsemi, auka menntun og færni, efla samkeppnishæfni svæða og stuðla þannig að auknum hagvexti og lífsgæðum innan aðildarríkja ESB. Hún styður við atvinnusköpun, samkeppnishæfni, hagvöxt, sjálfbæra þróun og lífsgæði í hinum dreifðu byggðum. Fyrir Ísland gæti þetta þýtt aukið fjármagn í samgöngur, stafræna innviði, nýsköpun, orkuskipti, ferðaþjónustu og aðra þjónustu, svo fátt eitt sé nefnt. Þessi tækifæri vil ég ekki loka á. Ég vil opna dyrnar fyrir nýjum tækifærum fyrir Ísland og þess vegna ætla ég að segja já í fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu. Ég vil að við klárum aðildarviðræðurnar með okkar besta samningsfólki sem gætir hagsmuna Íslands í hvívetna. Án aðildarviðræðna verðum við enn að spá og karpa næstu áratugina: Hvað ef? Hvað getum við fengið? Hvað getum við ekki fengið? Þjóðin á skilið að sjá samning og eingöngu með samningi getum við leitt „hvað ef“ í jörðu. Það gerum við með því að segja já við aðildarviðræðum í þjóðaratkvæðagreiðslunni svo við getum farið í þessar samningaviðræður.