157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[15:32]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Ég vil hins vegar benda hv. þingmanni á að samkvæmt samningi Íslands við ESB erum við með tollkvóta til að flytja inn, bæði fyrir lambakjöt og smjör og ýmislegt annað, en það hefur nú ekkert verið selt út samkvæmt þeim samningi þannig að það er til staðar. En hv. þingmaður er þeirrar skoðunar að við eigum að kanna hvað er í boði. Ég verð að viðurkenna að mér finnst það skrýtinn málflutningur því að Evrópusambandið er til og það væri góð hugmynd að byrja á því að kanna hvað myndi felast í aðild og ríkisstjórnin myndi leggja það fyrir þing og þjóð. Það er ekki gert. Það eru margir hlutir sem eru alveg 100% og þarf ekkert að ræða en ég vil spyrja hv. þingmann hvort hún hafi áhyggjur af því að nú liggi það fyrir að löggjafarvald, að stórum hluta framkvæmdarvald, sömuleiðis dómsvald, fer frá Íslandi til Brussel. Sömuleiðis liggur það fyrir og það hefur komið fram í umræðunni, hið augljósa, að yfirráð yfir sjávarútvegsmálum fara frá Íslandi til Brussel. Menn telja hins vegar að það sé hægt að semja um eitthvað til baka en við höfðum nú mjög mikið fyrir því að fá full yfirráð yfir okkar fiskveiðilögsögu og við sjáum ein um það, við erum ekki með neinum þegar við semjum um t.d. úthafsveiðarnar.

Ég vil þess vegna spyrja hv. þingmann: Truflar það hv. þingmann ekki neitt að við munum þurfa að búa við það að Evrópusambandið ákveði eitthvað og það verður að lögum og reglum á Íslandi án þess að það þurfi nokkurn tímann að fara hér inn á Alþingi Íslendinga? Truflar það hv. þingmann ekki neitt að öll lög sem eru í ósamræmi við ESB-rétt gilda ekki lengur? (Forseti hringir.) Truflar það hv. þingmanni ekki neitt að við getum ekki samið nein lög hér sem er andstæð ESB-rétti ef við förum inn?