þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka þingmanninum fyrir spurninguna. Hann spyr hvort það trufli mig ekki að allar ákvarðanir verði teknar í Brussel, þá án okkar aðkomu, geri ég ráð fyrir að hann geri ráð fyrir. En kannski er það vegna þess að hann gefur sér að samningurinn sem myndi nást sé bara mjög vondur fyrir Ísland. Ég var sérstaklega ánægð með það í nefndaráliti meiri hluta utanríkismálanefndar, það er hérna á bls. 11, að þar eru samningsmarkmið í sjávarútvegsmálum. Það segir hér, með leyfi forseta:
„Meiri hlutinn áréttar að sjávarútvegsmálin eru stærsta hagsmunamál Íslands þegar kemur að mögulegri aðild að ESB enda um að ræða eina af meginstoðum íslensks efnahagslífs og grundvöll að búsetu hringinn í kringum landið.“
Ég var mjög ánægð að sjá það. Meiri hlutinn segir líka hér á bls. 11:
„Meiri hlutinn telur lykilkröfur Íslendinga snúa að forræði yfir sjávarauðlindinni og rétti Íslendinga til að stýra sókn í veiðistofna er byggist á sjálfbærri nýtingu, ráðgjöf sérfræðinga og veiðireynslu.“
Þetta finnst mér vera mjög góð samningsmarkmið fyrir samninganefnd að fara með til Brussel og ef við náum því fram er ég ekki óttaslegin og ég fer alveg óhrædd inn í það, ég get sagt það. En það þarf auðvitað að hafa fyrir því að ná þessum samningsmarkmiðum, það er alveg ljóst. En það er grundvallarmál í aðildarviðræðunum að við séum sátt við það hvernig við leysum sjávarútvegsmálin. Það hefur auðvitað verið, eins og ég vísaði í í ræðu minni, eitt af þeim stóru málum sem við höfum karpað hér um síðustu áratugi. En ég er ekki óttaslegin náum við fram samningsmarkmiðum okkar.