157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[15:38]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég kann auðvitað að meta þessar föðurlegu ábendingar sem hér koma fram í máli þingmannsins, en ég vísa enn og aftur í álit meiri hluta utanríkismálanefndar sem ég tel vera góðar. Ég er ekki óttaslegin af því að mér finnst þetta vera alveg skýrt í áliti meiri hlutans þar sem segir, með leyfi forseta:

„Meiri hlutinn telur að raunhæf leið til að tryggja forræði Íslands yfir sjávarauðlindinni innan íslenskrar fiskveiðilögsögu sé að lögsagan verði t.d. skilgreind sem sérstakt íslenskt fiskveiðistjórnarsvæði.“

Þessi setning gefur mér ákveðið „comfort“ og ég er til í að sjá samninginn en þetta fáum við kannski ekki alveg á hreint fyrr en við sjáum samning, vonandi innan tveggja ára. Ég tel að við getum karpað um þetta fram og til baka fram að því en þetta verði ekki leitt í jörð fyrr en við sjáum samning.

(Forseti (IngÞ): Forseti minnir á að þingmálið er íslenska.)