þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Þetta er nú kunnuglegt stef. Það er auðvitað verið að blekkja og pretta þjóðina, sem er bara ekki hægt. Það er ekki hægt að blekkja þjóðina inn í Evrópusambandið. Þess vegna erum við með tvær þjóðaratkvæðagreiðslur. Sú fyrri er um hvort eigi að halda aðildarviðræðunum áfram. Það er ekki spurning um hvort það eigi að ganga inn í Evrópusambandið. Það er ekki þannig. Það kemur skýrt fram og hefur komið fram í ræðum og kom fram í umsögn Feneyjanefndarinnar að það mætti alls ekki spyrja að því. Það er verið að spyrja hvort það eigi að halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið og svo, ef jáið fæst og við náum hagstæðum samningi, þá verður þjóðin spurð aftur. Það er ekkert hægt að blekkja þjóðina. Hún segir bara já eða nei. Ef við náum samningi þá verður hann líka lagður fyrir þjóðina.
Varðandi hvað fyrrum forseti Íslands sagði, sem ég hef nú oft haft miklar mætur á, þá hef ég ekki hlustað á þetta viðtal við hann og get svo sem ekki brugðist við því en hann hlýtur að hafa sín rök í málinu. Ég hef mín og þau eru að það er ekki hægt að blekkja þjóðina. Það er bara þannig. Hún hefur valið í tveimur þjóðaratkvæðagreiðslum og það þykir mér mikilvægt. Þannig er lýðræðið. Hún verður ekki blekkt.