157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[15:43]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég vil samt benda hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur á það að hæstv. forsætisráðherra hefur nú bara komið hér í pontu og haldið því fram að mögulega myndi hún ekki setja þennan samning í þjóðaratkvæði. En það væri gott fyrir hv. þingmann að hlusta á prófessorinn í stjórnmálafræði, okkar fyrrverandi forseta, sem bendir á að það er ekki forsætisráðherra sem fer með þetta vald. Það er hæstv. utanríkisráðherra sem fer með þetta vald og það er þá hæstv. utanríkisráðherra sem tekur ákvörðun um það en ekki hæstv. forsætisráðherra.

Nú er mikið talað um það og er oft í orðræðunni í kringum þessa umsókn að þetta sé líka spurning um varnar- og öryggishagsmuni. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hún sé sammála því í ljósi þess að Jens Stoltenberg segir að Evrópusambandið sé ekki varnarbandalag, að Mark Rutte, framkvæmdastjóri NATO, segir að Evrópa muni og geti ekki varið sig ein og sér. Talandi um að vera að blekkja fólk þegar allir þeir sem hafa mikið vit á öryggis- og varnarmálum í Evrópu segja bæði að Evrópusambandið sé ekki varnarbandalag og að Evrópa geti ekki varið sig ein og sér. (Forseti hringir.) Er þá ekki verið að blekkja fólk með því að segja að okkur sé betur borgið í Evrópusambandinu út frá öryggis- og varnarhagsmunum?